fasteignasölur.is

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

Vorum að fá í sölu sérlega fallega 4ra herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngang og stórum suðurpalli ásamt stæði í bílageymslu. 
Eignin er samtals 116,4 fm., auk stæðis í bílageymslu.  Íbúðin er á jarðhæð garðmegin og 1. hæð að framanverðu.

 
Eignin skiptist í : Forstofu, hol, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, rúmgóða sérgeymslu og stæði í bílgeymslu.

Nánari lýsing: 
Komið er inn í forstofu með fataskáp. 
Hol er opið inn í stofu/borðstofu. 
Rúmgóð og björt stofa/borðstofa er með útgengt á rúmgóðan sólpall. 
Stór timburverönd með skjólgirðingu fylgir íbúðinni. Pallurinn snýr til suðurs.  
Í eldhúsi er falleg ljós innrétting með viðaráferð, tengi fyrir uppþvottavél, keramikhelluborð með veggháf yfir og opið á eina hlið inn í stofu/borðstofu. 
Þvottaherbergi er með hvítir innréttingu fyrir þvottvél og þurkara, handklæðaofn, hillum og opnanlegum glugga. 
Hjónaherbergi er með fataskáp. 
Tvö barnaherbergi eru með fataskáp. 
Í baðherbergi er hvít innrétting, baðkar með sturtustöng, upphengt salerni, handklæðaofn og flísar upp veggi. 
Harðparket er á gólfum, nema á forstofu, þvottaherbergi og baðherbergi þar sem eru flísar. 
Rúmgóð sérgeymsla, ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu, er í kjallara. 
Eitt stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Sameiginleg aðstaða til bílaþvottar.


Sérinngangur er í íbúðina úr opnu sameiginlegu stigahúsi.   Samkvæmt HMS er íbúðin 106 fm. og geymsla 10,4 fm., eða samtals 116,4 fm, auk stæðis í bílageymslu.
Það helsta sem hefur veirð gert síðustu ár að sögn seljanda:

2026 – Timburverk í stigagöngum málað og stigagangar blettamálaðir.
2026 – Bílastæðalínur á bílaplani endurmálaðar.
2026 – Gluggar, svalagluggar og svalahurðir sem ekki þarfnast endurnýjunar við málaðir.
2026 – Rafvirki fór yfir alla útilýsingu og framkvæmdi nauðsynlegar lagfæringar.
2026 – Múrviðgerðir framkvæmdar í stigagöngum.
2025 – Skyggni yfir stigagöngum vatnsvarið.
2025 – Þak hússins endurnýjað.
 

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Þórðarsveigur 28

113 Reykjavík · Grafarholt
TegundFjölbýlishúsStærð116,4 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
79.900.000 kr.686 þ./m²
Byggingarár2005InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2268525Fasteignamat79.000.000 kr.Brunabótamat67.260.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál