Um eignina
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 106,6 m2, 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi í fimm íbúða húsi við Snæfríðargötu 5 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 106,6 m2, þar af íbúð 99,8 m2 og geymsla 6,8 m2. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, baðherbergi/þvottaherbergi, eldhús og stofu. Sérgeymsla er í sameign.
Gott skipulag. Fallegar innréttingar og gólfefni. Stórar timburverönd í suðurátt með fallegu útsýni. Frábær staðsetning. Stutt er í skóla, leikskóla, göngu- og hjólastíga og ósnortna náttúru.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús er með parketi á gólfi og L-laga hvítri innréttingu frá HTH. Í innréttingu er blástursofn, innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur/frystiskápur, helluborð og vifta.
Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á stóra timburverönd í suðurátt með fallegu útsýni.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi/þvottaherbergi er flísalagt og með innréttingu frá HTH. Á baði er sturta, vegghengt salerni og innrétting. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í góðri vinnuhæð.
Sérgeymsla í sameign fylgir íbúðinni 6,8 m2.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð.
Húsið er hannað og teiknað af Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar og var byggt af Byggingarfélaginu Bakka ehf árið 2018.
Verð kr. 87.600.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Snæfríðargata 5
Staðsetning
Allar 30 myndir
Upp ↑




























