fasteignasölur.is
Fellsmúli 20
1 af 20

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is kynnir til sölu snyrtilega 4ra herbergja íbúð á efstu hæð við Fellsmúla 20, nr. 402. Íbúðin skiptist í forstofuhol, stofu, suðursvalir, eldhús, 3 svefnherbergi, þar af tvö barnaherbergi, hjónaherbergi með fataherbergi inn af, baðherbergi og sérgeymsla (5,5fm) í sameign ásamt sameiginlegu þvottahúsi. 

Nánari lýsing:
Forstofuhol með parketi.
Stofa er björt með parketi og útgangi út á svalir sem snúa til suðurs.
Eldhús er með dúk á gólfi og dökkri innréttingu og borðkrók. 
Svefnherbergi I með parketi.
Svefnherbergi II með parketi og fataskápum.
Hjónaherbergi með fataskápum og fataherbergi inn af. 
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu og baðkari. 
Sérgeymsla; 5,5 fm er í sameign og sameiginlegt þvottahús. Merkt á teikningu 0002
Aðrar eignir í stigahúsinu hafa breytt fataherbergi inn af hjónaherbergi í þvottahús.
Möguleiki er að flest húsgögn og raftæki get fylgt eigninni.

Nýlegar endurbætur hafa átt sér stað á húsinu, gluggar lagfærðir að hluta og skipt um þakpappa. 2022/2024 
Húsfélagsgjaldið er aðeins 7.500 á mánuði þar sem húsfélagið leigir út stúdíóíbúð í þeirra eigu á jarðhæð sem skilar leigutekjum í húsfélagið. 

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 eða í netfangið jason@betristofan.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Fellsmúli 20

108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð105,4 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
66.900.000 kr.635 þ./m²
Byggingarár1967InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2015745Fasteignamat71.500.000 kr.Brunabótamat51.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑