fasteignasölur.is
Kuggavogur 4
Opið hús 5. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 20

Um eignina

Glæsileg íbúð við Kuggavog 4 í Vogabyggð, 104 Reykjavík. Um er að ræða glæsilega 3ja herbergja íbúð í lyftuhúsi og fylgir bílastæði íbúðinni og er það ekki inn í fermetratölu. Innangengt er úr bílakjallara í lyftu- og stigahús. Sér geymsla er í kjallara. 

Bókið skoðun hjá: Ásmundur Skeggjason asi@hofdi.is, Gsm 895 3000.

Skoðaðu 3 D mynidr af eigninni hér


Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með báru-álklæðningum eða sléttum-álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald hússins. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Íbúð 205: Er 92,5 fermetra þriggja herbergja íbúð á annarri hæð með svölum til suðurs. Þar af er geymsla 10,6 fermetrar og bílastæði í bílakjallara að auki. Afhending getur verið fljótlega ef vill.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í anddyri/forstofu, eldhús með eyju sem er opið inn í rúmgott alrými/stofu, 2 svefnherbergi,  baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengi á svalir til suðurs úr stofu.

Vogabyggð er skjólsæl perla á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna. Frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í umhverfi sem býður bæði upp á borgarbrag og í senn sterka tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar.


Innréttingar: Í eldhúsi og baðherbergi eru innréttingar frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði.  Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á aðalbaðherbergjum. 

Eldhústæki: Vönduð eldhústæki af gerðinni AEG. Span helluborð, innbyggður kæliskápur, innbyggð uppþvottavél, blástursofn og vifta.

Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturta eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru frá Grohe, hitastýrð eða einnar handar. Þvottahús er í sér rými.

Hringdu núna og bókaðu tíma hjá Ásmundi Skeggjasyni asi@hofdi.is, Gsm 895 3000.-

Kuggavogur 4

104 Reykjavík · Vogar
TegundFjölbýlishúsStærð92,5 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
80.000.000 kr.865 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2516626Fasteignamat77.900.000 kr.Brunabótamat67.590.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSuðurlandsbraut 52 108 ReykjavíkSími533-6050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑