1 af 90
Um eignina
Nes fasteignasala kynnir jörðina:
Álftárbakki í Borgarbyggð ásamt hlunnindum, ræktun og öllum mannvirkjum.
Um er að ræða mjög vel staðsetta jörð um 20 km vestur af Borgarnesi. Jörðin, sem er um 800 ha að stærð liggur að Álftá að sunnan og mætir þar landi Hrafnkelsstaða. Að norðan, austan og sunnan eru landamerki móti Arnarstapa, Urriðaá og Þverholtum.
Jörðin Jörðinn er landstór og liggur beggja vegna Álftaneshreppsvegar. Mestur hluti landsins er mýrar og flóar, sundurskornir af lágum ásum. Austur hluti landsins, nefndur Skáney, liggur að Brókarvatni. Þar er eru kjarri vaxnir ásar og klettaborgir sem henta vel til uppbyggingar á sumahúsasvæði. Tvær tjarnir eru sunnan vegarins.
Jörðinni fylgir veiðiréttur í Álftá og er starfandi veiðifélag um ána skv. lögum um lax og silungsveiði. Hlutur jarðarinnar í arðskrá veiðifélagsins er 64,6 einingar af 1000 einingum samkvæmt matsgerð frá 4. mars 2026. Jörðinni fylgir þá einnig tilsvarandi eignarhlutur í veiðihúsi við ána.
Bæjarstæðið á Álftárbakka er á lágum hól skammt vestan Álftaneshreppsvegar við bakka Álftár. Þaðan er víðsýnt og fallegt útsýni.
Ekki hefur verið stundaður búskapur á jörðinni undanfarin ár og er jörðin án fullvirðisréttar. Tún jarðarinnar, skráð 4,8 ha í fasteignaskrá HMS,, en að auki eru um 50 ha af framræstu landi. Heimatúnið er slegið og hirt.
Byggingar á jörðinni
Íbúðarhús byggt 1978. Húsið er á einni hæð 162,0 fm að stærð. Steinsteypt bygging, klædd að utan með stáli og einangruð. Húsið skiptist í rúmgott flísalagt anddyri, eldhús með borðkrók og þvottahús þar innaf. Hol og stofa mynda alrými innaf anddyri og þar er parket á gólfum, þaðan er gengt út á baklóðina með góðu útsýni yfir Álftánna. Fjögur svefnherbergi og baðherbergi eru á svefnherbergisálmu. Parket á gólfum og skápur í hjónaherbergi en baðherbergi dúklagt með baðkar og sturtu.
Húsið er kynt með rafmagni. Allar neysluvatnslagnir endurnýjaðar.
Bílskúr stakstæður, byggður 2010, 81,80 fm að stærð. Veggir eru steinsteyptar einingar frá Loft-Orku með yleiningum í þaki. Rafmagn og vatn tengt. Gólf er steypt og slípað og á húsinu er gert ráð fyrir 2 innaksturhurðum. Flekar eru fyrir annarri en góð hurð fyrir hinni.
Hér er um mjög áhugaverða og landstóra jörð að ræða. Jörðin hentar hvort sem er til búskapar, skógræktar eða sem frístundajörð. Stutt er í þjónustu í Borgarnesi og aðra afþreyingu á svæðinu.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Álftárbakki
311 Borgarnes (dreifbýli)
TegundJörð/LóðStærð48243,8 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
229.000.000 kr.5 þ./m²
InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2111901Fasteignamat46.763.000 kr.Brunabótamat129.050.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 90 myndir
Upp ↑