fasteignasölur.is
Þingvað 75
Opið hús 6. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 43

Um eignina

Fallegt og fjölskylduvænt raðhús á tveimur hæðum auk innangengs bílskúrs við Þingvað 75 í Reykjavík. Fjögur rúmgóð svefnherbergi, rúmgóðar svalir með skjólgleri og pallur í suður.  Fallegt útsýni. Frábær staðsetning í nálægð við náttúruna og göngufæri við hesthúshverfið í Víðidal, einnig stutt í skóla og leikskóla. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 204,7 fm. og þar af er bílskúr 26,4 fm. 


Eignin skiptist þannig- neðri hæð, forstofa, baðherbergi, þvottahús, þrjú svefnherbergi, stór pallur út í garð og bílskúr. Efri hæð-eldhús, stofa,  borðstofa, svefnherbergi, gestasalerni og  rúmgóðar svalir. 

Nánari lýsing neðri hæðar.
Forstofa með góðu skápaplássi og flísar á gólfi. 
Forstofuherbergi með fataskáp og parket á gólfi. 
Hol rúmgott með flísum á gólfi. 
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi. 
Svefnherbergi með fataskáp og parket á gólfi.   
Gangur með flísum á gólfi og útgengi út á rúmgóðan pall.
Steyptur stigi með kókosteppi. Geymslurými undir stiga.
Baðherbergi með innangengri sturtu, innbyggð blöndunartæki, gluggi, góð innrétting og flísalagt í hólf og gólf. 
Þvottahús með hvítri innréttingu, vélar í vinnuhæð, vaskur og flísar á gólfi. Inn af þvottahúsi er innangengt í bílskúrinn.
Bílskúr með rafmagnhurðaropnara og innaf bílskúr er geymsla. 

Nánari lýsing efri hæðar.
Eldhús er opið inn í stofu með snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu, ofn í vinnuhæð. Eyja sem hægt er að sitja við með helluborði og parket á gólfi.   
Stofa-borðstofa með gólfsíðum gluggum og parket á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðar svalir með gler skjólvegg.
Svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi. 
Sjónvarpsrými með parketi á gólfi ( auðvelt að útbúa svefnherbergi ).
Gestasalerni með glugga, upphengt salerni, vaskur og flísar á gólfi. 

Hellulagt er fyrir framan bílskúr og er hitalögn í bílaplaninu.
Þetta er frábær eign fyrir þá sem vilja vera í nálægð við náttúruna og njóta útivistar.

Allar nánari upplýsingar veitir Kristján Baldursson hdl. og löggiltur fasteignasali í síma 8673040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is eða Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Þingvað 75

110 Reykjavík · Árbær/Selás
TegundRað-/parhúsStærð204,7 m²Herbergi6Svefnherb.4Baðherb.2
169.900.000 kr.830 þ./m²
Byggingarár2010InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2301291Fasteignamat152.000.000 kr.Brunabótamat104.630.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 43 myndir

Upp ↑