fasteignasölur.is
Staðarborg 26 C
1 af 34

Um eignina

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:

Staðarborg 26 C, 190 Vogar

Tveggja hæða raðhús með þremur svefnherbergjum, skrifstofu/geymslu og tveimur snyrtirýmum. Á neðri hæð er opið alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast saman, en á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi og sérþvottahús. Frá hjónaherbergi er útgengt á svalir með útsýni til sjávar. Eigninni fylgir sérnotaflötur á lóð og hleðslustöð fyrir rafbíl. Eignin er laus við kaupsamning.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit.
Smelltu hér til að bóka skoðun. Sýnum samdægurs!


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð 129,2 m² raðhús. Skráð flatarmál skiptist í 63,7 m² á neðri hæð, 61,0 m² á efri hæð og 4,5 m² inntaks-/geymslurými. Eigninni fylgja jafnframt 5,5 m² svalir sem teljast ekki til birts flatarmáls.

Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa
er rúmgóð.
Skrifstofa/geymsla er inn af forstofu.
Gestasnyrting er flísalögð og með upphengdu salerni, innréttingu með vaski og handklæðaofni.
Eldhús er með ljósri innréttingu og eyju. Helluborð og bakaraofn eru í eyjunni og háfur yfir. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja eigninni.
Stofa, borðstofa og eldhús mynda opið alrými. Stórir gluggar eru í stofu og þaðan er útgengt á sérnotaflöt að baki húsinu.
Tréstigi liggur frá alrými upp á efri hæð.

Lýsing og skipulag efri hæðar:
Hjónaherbergi
er með fataskáp og útgengi á svalir. Frá svölunum er útsýni til sjávar.
Tvö svefnherbergi eru jafnframt á efri hæð.
Baðherbergi er flísalagt á gólfum og veggjum. Þar er innrétting með vaski, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta með glerþili.
Þvottahús er sérstakt rými á efri hæð.
Gólfefni eru parket á meginrýmum og svefnherbergjum en flísar í forstofu og votrýmum.

Byggingarlýsing:
Húsið er timburhús, byggt árið 2023. Ytra byrði er klætt bárujárni og timburklæðningu að hluta. Húsið skiptist í fjórar íbúðir á tveimur hæðum og hefur hver íbúð sérinngang. Hverri íbúð fylgir sérstakt inntaks-/geymslurými. Hver hefur íbúð sér hitamæli og raforkumæli.

Lóð og aðkoma:
Lóðin er í óskiptri sameign en hverri eign fylgir afmarkaður sérnotaflötur samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu. Aðkoma að húsinu er malbikuð og hleðslustöð fyrir rafbíl fylgir eigninni.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is


Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.


- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Staðarborg 26 C

190 Vogar
TegundRað-/parhúsStærð129,2 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
85.300.000 kr.660 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2527926Fasteignamat73.700.000 kr.Brunabótamat67.200.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangReykjanesvegur 40, 260 ReykjanesbæSími780-2575

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑