1 af 14
Um eignina
Borg fasteignasala kynnir til sölu glæsilegt og einstaklega bjart 148 fm atvinnuhúsnæði að Fiskislóð 31, 101 Reykjavík. Eignin er á eftirsóttum stað á Grandanum. Mikil lofthæð og stórir gluggar.
Húsnæðið er skráð samtals 148 fm og skiptist í um 90,3 fm jarðhæð og 57,7 fm milliloft. Húsið er byggt árið 2010.
Nánari lýsing:
Á jarðhæð er rúmgott og opið vinnurými með mikilli lofthæð og stórum gólfsíðum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn í húsnæðið. Rýmið er opið og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Stigi liggur frá jarðhæð upp á milliloft.
Á millilofti er rúmgóð og björt skrifstofu- og vinnuaðstaða. Þar er einnig setuaðstaða og snyrtileg eldhúsaðstaða. Stórir gluggar setja sterkan svip á efri hæðina og þaðan er gott útsýni.
Í húsnæðinu er jafnframt snyrting með innréttingu, handlaug og upphengdu salerni.
Eignin er stílhrein og nútímaleg með skemmtilegu hráu yfirbragði, þar sem steypt gólf, mikil lofthæð og stórir gluggar njóta sín vel. Húsnæðið hentar vel undir skrifstofur, vinnustofu, sýningarrými eða aðra atvinnustarfsemi.
Um er að ræða virkilega skemmtilega og karakterríka atvinnueign á góðum stað á Grandanum, þar sem birta, lofthæð og opin rými eru í aðalhlutverki.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Úlfar Þór Davíðsson, löggiltur fasteignasali, í síma 788 9030, ulfar@fastborg.is

Fiskislóð 31
101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð148 m²
85.000.000 kr.574 þ./m²
Byggingarár2010FasteignanúmerF2500246Fasteignamat61.750.000 kr.Brunabótamat80.700.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 14 myndir
Upp ↑