fasteignasölur.is
Eyjabakki 2
Opið hús 6. okt. kl. 17:30–18:00
1 af 40

Um eignina

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu EYJABAKKI 2, 109 Reykjavík. Falleg fjögurra herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð. Hún skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi, auk þvottahús/geymslu innan íbúðar. Í kjallara er ein sérgeymsla og sameiginleg geymsla með sérmerktu rými ásamt sameiginlegu þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymslu. Húsið er klætt að utan og lóð snyrtileg. Tilvalin fjölskyldueign!

Eignin er skráð alls 105,9 fm. samkvæmt HMS. , byggt árið 1969.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit

Nánari lýsing:
Forstofa: Glerveggur á milli forstofu og borðstofu, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum, parket á gólfi. Útgengt er á góðar suðursvalir.
Eldhús: Góð eldhúsinnrétting með eldavél, borðkrókur, parket a gólfi og flísar á milli efri og neðri skápa.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskáp sem nær upp í loft, dúkur á gólfi.
Herbergi 1: Dúkur á gólfi, fataskápur á gangi framan við herbergi.
Herbergi 2: Dúkur á gólfi.
Baðherbergi: Góð innrétting, baðkar með sturtu, flísar á veggjum og gólfi.
Þvottahús/geymsla: Inn af eldhúsi - tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gluggi, dúkur á gólfi. 
Svalir: Góðar suðursvalir með útgengi frá stofu.

Sérgeymsla: Í kjallara, stærð 4,4 fm. Stærð á sameiginlegri geymslu er 13 fm. og er með sérmerktu rými.
Þurrkherbergi: Sameiginlegt, í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla: Sameiginlegt, í kjallara.

Nýlegar endurbætur:
2025: Fóðrun skólplagna í húsinu.
Gólfteppi á stigagangi hefur verið endurnýjað.
2020: Skipt hefur verið um hurðir í þremur herbergjum og baðherbergi.

Staðsetning eignarinnar er afar miðsvæðis og eftirsótt. Hér er stutt í alla helstu þjónustu, verslanir og skólar í næsta göngufæri.

Allar nánari upplýsingar veita:
Anton Y. Sakornram, aðstoðarmaður fasteignasala, s. 779-5463 / anton@trausti.is
Kristján Baldursson, hdl. og löggiltur fasteignasali, s. 867-3040 / kristjan@trausti.is
Bóka verðmat
www.trausti.is
Trausti á Facebook
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Eyjabakki 2

109 Reykjavík · Bakkar/Seljahverfi
TegundFjölbýlishúsStærð105,9 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
64.900.000 kr.613 þ./m²
Byggingarár1969InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2047302Fasteignamat63.600.000 kr.Brunabótamat55.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑