fasteignasölur.is
Breiðamörk 3
1 af 6

Um eignina

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna:
Breiðamörk 3 sem er 4.552,6 fm lóð, mjög vel staðsett miðsvæðis í Hveragerði. Á lóðinni í dag eru 4 gróðurhús og eru í einu þeirra starfrækt kaffihús/veitingastaður. Heildar fermetrar húsa eru 1.487 fm. Möguleiki á að kaupa og taka við rekstri kaffihúss/veitingarstaðar eins og hann er í dag eða uppbyggingarmöguleikar. TILVALIÐ FYRIR VERKTAKA.

Húsinu, sem starfrækt er í kaffihús, er skipt til helminga. Húsið sjálft er gróðurhús með gleri í hliðum og þaki innan hússins sem uppfyllir kröfur sem þarf til þess konar rekstrar.
Nánari lýsing þess hluta þar sem starfrækt er kaffihús/veitingahús:

Veitingaleyfi og salur fyrir 80 manns.
Fullbúið eldhús.
Steypt gólf.
Salernisaðstaða sem skiptist í fjögur salerni fyrir kvenmenn, þrjú salerni fyrir karlmenn og eitt salerni fyrir fatlaða. Starfsamanna salernisaðstaða sem inniheldur upphengt salerni ásamt vaski og steyptu gólfi.
Lagerrými.
Nánari lýsing þess hluta sem áður var starfrækt blómabúð:
Hellulagt gólf.
Kaffiaðstaða.
Salernisaðstaða með upphengdu salerni og vaski.
Tveir lagerskúrar eru inni í þessum hluta.

Samkvæmt lóðarleigusamningi er nýtingarhlutfall 0,6, mögulegur fjöldi hæða tvær og íbúðarnotkun 30% skv. aðalskipulagi Hveragerðisbæjar. Lóðin var nýverið stækkuð úr 3.920 m2 í 4.552,6 m2 og býður upp á ýmsa möguleika.
Eignin er staðsett miðsvæði í Hveragerði og liggur við eina aðalgötu bæjarins. 

Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@aldirfasteignir.is
 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Breiðamörk 3

810 Hveragerði
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð1487 m²
157.000.000 kr.106 þ./m²
Byggingarár1988InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2210068Fasteignamat108.020.000 kr.Brunabótamat188.150.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 6 myndir

Upp ↑