Um eignina
Vel skipulagt einbýlishús á einni hæð ásamt sérstæðum bílskúr með stúdíóíbúð í grónu hverfi í Hveragerði.
**3 svefnherbergi **Stúdíóíbúð í bílskúr **Endunýjað eldhús og baðherbergi.
Eignin er skráð 153,4 fm skv HMS og er bílskúr þar af 44,4 fm.
Eignin telur: stofu, eldhús, borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, bílskúr með stúdíóíbúð og geymsla.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa með nýlegu gólfteppi og fatahengi.
Stofa/borðstofa er með parket á gólfi.
Eldhús er rúmgott og var endurnýjað 2017, góð innrétting með miklu skápaplássi, span helluborð, bakaraofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Opið inn í borðstofu úr eldhúsi.
Herbergi I er rúmgott með fataskápum og parket á gólfi.
Herbergi II með fataskáp og parket á gólfi.
Herbergi III með parket á gólfi.
Baðherbergi var endurnýjað 2017, flísalagt með walk in sturtu, upphengt salerni og góð innrétting.
Þvottahús með vaski og hillum, málað steypt gólf. Útgengt úr þvottahúsi í stóran garð sem liggur í kringum húsið, þvottasnúrur á baklóð.
Geymsla er í aftasta hluta bílskúrs, sér hurð inn í hana. Þar er lagnagrindin staðsett ásamt varmaskipti
Bílskúr (44,4 fm) er búið að breyta skipta í tvennt, annars vegar í smekklega stúdíóíbúð og hins vegar í geymslu, gert árið 2019. Sitt hvor hurðin er inn í íbúð og geymslu. Gluggar og hurðir í bílskúr eru úr viðhaldsfríu plasti. Bílastæði fyrir 4 bíla.
Nánari lýsing stúdíóíbúðar: komið er inn í forstofu sem er stúkuð af með fataskáp, flísar á gólfi. Alrými sem inniheldur stofu/svefnrými og eldhús, parket á gólfi. Eldhús með nettri innréttingu, vaskur, eldavél og ísskápur. Baðherbergi er rúmgott með walk in sturtu og opnanlegum gluggar, linoleum dúkur á gólfi. Gólfhiti er í bílskúr.
Eignin hefur fengið gott viðhald og hefur verið töluvert endurnýjuð:
- Búið er að endurnýja þakskyggni og rennur.
- Árið 2017 var eldhús, baðherbergi og gólfefni endurnýjað.
- Búið er að endurnýjað gler eftir þörfum.
- Árið 2019 var stúdíóbúð í bílskúr útbúin
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun veitir Freyja Rúnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Heiðarbrún 45
Staðsetning
Allar 33 myndir
Upp ↑































