fasteignasölur.is
Hólmasund 14
1 af 22

Um eignina

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
BÚSTAÐUR GÆTI FENGIST AFHENT NOKKUÐ FLJÓTT.
Um er að ræða sumarbústað á gróinni lóð og skjólsælum stað við Hólmasund í Hraunborgum, Grímsnes- og Grafningshreppi.  Bústaðurinn stendur á 5000 fm gróinni lóð sem er leigulóð og er lóðarleigan ca. kr. 140.000 á ári, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 2024.
Bústaðurinn er byggður árið 1988 og stendur á steyptum stólpum, hann er skráður 46,8 fm skv HMS.  Rafmagnskynding er í húsinu.  Rotþró er við húsið.  Kalt vatn er tengt inn í húsið en hitaveita er á svæðinu sem væri hægt að tengja við húsið.


Húsið fæst afhent fljótlega og getur allt innbú fylgt að undanskildum persónulegum munum.

Húsið þarfnast orðið viðhalds en kringum húsið er timbuverönd sem þarf að endurnýja að hluta til, einnig er kominn tími á endurnýjun á þaki og þakkanti. 

Bústaðurinn skiptist í stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, salerni með vaski og geymslu sem er bæði hægt að ganga í utan frá og innan frá.

Nánari lýsing:
Inngangur í húsið er af verönd inn í stofu/borðstofu, veröndin liggur kringum húsið.
Eldhús er nú þar sem áður var svefnherbergi, möguleiki á að færa eldhús aftur inn í stofu/borðstofu og fá þá 3ja herbergið. Eldavél, lítil uppvöskunarvél uppi á borði.
Tvö svefnherbergi eru í húsinu, annað með rúmi og hitt með rúmi og kojum.
Salerni með nettum vaski. (ekki er sturta í húsinu).
Við hlið húss er ágætis geymsla og er gengið í hana utan frá en einnig hægt að ganga í hana innan frá (úr stofu/borðstofu).
Lóðin er virkilega skjólgóð með miklum gróðri, háum trjám og vel gróin. Aðkoma frá bílaplani að húsi er eftir upphækkaðri timbur gönguleið sem tengist verönd við húsið. 

Hraunborgir sumarhúsasvæðið er með öryggishliði og er þetta hús innan þess svæðis, hitaveita er komin á á svæðið og er búið að leggja hana að lóðarmörkum.
Öflugt sumarhúsafélag er rekið á svæðinu og er árgjald í það kr. 17.000.-
Öflug ferðaþjónusta er einnig rekin í Hraunborgum en þar er sundlaug, golfvöllur, veitingarstaður o.fl.
Mjög stutt er á 3 golfvelli, útivistar og göngusvæði.

Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@aldirfasteignir.is

 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Hólmasund 14

805 Selfoss (dreifbýli)
TegundSumarhúsStærð46,8 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
19.900.000 kr.425 þ./m²
Byggingarár1988InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2207473Fasteignamat21.250.000 kr.Brunabótamat24.550.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑