fasteignasölur.is
Suðurbraut 16
1 af 46

Um eignina

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á 4. hæð með miklu útsýni til allra átta, í vel viðhöldnu fjölbýli miðsvæðis í Hafnarfirði.
**Endurnýjað eldhús, baðherbergi og þvottahús.  **Endurnýjaðir gluggar. **Víðáttumikið útsýni. 
Eignin er vel staðsett  með leikskóla, grunnskóla, sundlaug, matvörubúð og miðbæ Hafnarfjarðar í göngufæri.   


Eignin er skráð 112,3 fm skv HMS sem skiptist í íbúð 106,9 fm og geymslu 5,4 fm. 

Nánari lýsing eignar:
Forstofa/hol
er mjög rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Stofa er björt með gluggum á tvo vegu og miklu útsýni, útgengt á suðvestursvalir.
Eldhús endurnýjað með fallegri innréttingu úr ikea, innbyggð uppþvottavél og ísskápur, bakaraofn í vinnuhæð og span helluborð.
Hjónaherbergi með fataskápum og parket á gólfi.
Herbergi II með fataskáp og parket á gólfi.
Herbergi III með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi endurnýjað með walk in sturtu, flísar á gólfi og inní sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Þvottahús er innaf eldhúsi, mjög rúmgott, allt endurnýjað, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur og opnanlegur gluggi. Málað gólf.
Geymsla á jarðhæð ásamt sameiginlegri vagna og hjólageymslu.
Bílastæði og gróin lóð með leiktækjum.

Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð að innan og húsið sjálft fengið gott viðhald. 
- Allir gluggar í íbúð og sameign endurnýjaðir, var gert í tvennu lagi árið 2015 og 2025.
- Húsið múrviðgert og málað árið 2025.
- Baðherbergi endurnýjað árið 2024.
- Þvottahús endurnýjað árið 2021.
- Eldhús endurnýjað árið 2019.
- Parket endurnýjað árið 2019.
- Rafmagnstafla endurnýjuð árið 2019.

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@aldirfasteignir.is
---------------------------------------------------------------------------


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Suðurbraut 16

220 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð112,3 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
77.500.000 kr.690 þ./m²
Byggingarár1969InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2079648Fasteignamat67.850.000 kr.Brunabótamat55.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 46 myndir

Upp ↑