fasteignasölur.is
Traðarstígur 13
1 af 22

Um eignina

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
Rúmgott og töluvert endurnýjað einbýlishús á tveimur hæðum á hornlóð við Traðarstíg 13 í Bolungarvík. **6 svefnherbergi  ** 2 baðherbergi  **Rúmgóð afgirt timburverönd og stór lóð
Á efri hæð er forstofa, stofa og borðstofa, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Á neðri hæð er forstofa/gangur, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og kyndiklefi.  
Möguleiki á að loka á milli hæða og hafa sem tvær íbúðir.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:

Íbúð á hæð  93,4 fm merkt 01-0101, íbúðarherb í kjall 49,4 fm merkt 01-0001 og bílskúr(sem búið er að breyta í herbergi með útgönguhurð) 44 fm merkt 01-0002.

Nánari lýsing efri hæðar:
Forstofa með fataskáp og flísar á gólfi.
Hol með harðparket á gólfi. 
Stofa með harðparket á gólfi, timburstigi niður á neðri hæð hússins úr stofu.
Borðstofa með parket á gólfi.
Eldhús er rúmgott með flísar á milli efri og neðri skápa, tengi fyrir uppþvottavél, span helluborð og bakarofn í vinnuhæð. Hiti í gólfi og harðparket. 
Baðherbergi er flísalagt með hornbaðkari, innrétting með skúffum, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. 
Hjónaherbergi með fataskápum, fastur höfðagafl með baklýsingu og rafmagnstenglum og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi með harðparketi á gólfi. 

Nýlegur tréstigi er á milli hæða, úr stofu niður í forstofu.

Nánari lýsing neðri hæðar:
Forstofa/gangur með flísum á gólfi, sérútgangur þar með nýlegri hurð.
Rúmgott herbergi (áður bílskúr) með parket á gólfi, útgengt á stóran sólpall þar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtu.
Þrjú svefnherbergi með parket á gólfi. 
Þvottahús með vask, málað steypt gólf og opnanlegur gluggi. 
Kyndiklefi við enda gangs með hillum, flísar á gólfi.
Hitalagnir í gólfi á neðri hæð, nema í þvottahúsi.

Rúmgóð afgirt timburverönd á tveimur pöllum við suður- og austurhlið hússins, stór lóð liggur í kringum húsið, þvottasnúrur á lóð og stæði fyrir 3-4 bíla.

Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@aldirfasteignir.is


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Traðarstígur 13

415 Bolungarvík
TegundEinbýlishúsStærð186,8 m²Herbergi7Svefnherb.6Baðherb.2
57.900.000 kr.310 þ./m²
Byggingarár1961InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2121678Fasteignamat44.550.000 kr.Brunabótamat95.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑