fasteignasölur.is
Áshamar 6 íb. 101
1 af 33

Um eignina

Aldir Fasteignir kynnir í einkasölu:
Um er að ræða 3ja herbergja 90,7 m2 endaíbúð á 1.hæð ásamt stæði í bílageymslu við í Áshamar 6 í Hafnarfirði.
Innbyggð uppþvottavél og ísskápur er í eldhúsi ásamt því að gardínur eru í íbúð.
ÍBÚÐ GETUR VERIÐ LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.


Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 79,1 fm merkt 03-01-01 og geymsla er 11,6 fm merkt 03-00-01, samtals 90,7 fm að stærð.
Stæði í bílgeymslu merkt 07B27, fylgir með íbúð.

Allar nánari upplýsingar og bókanir á skoðun færðu hjá:
Freyja Rúnarsdóttir lögg.fasteignasali s. 694-4112 eða freyja@aldirfasteignir.is
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@aldirfasteignir.is
Monika Hjáltýmsdóttir lögg.fasteignasali s. 823-2800 eða monika@aldirfasteignir.is
Sigurður Rúnar lögg.fasteignasali s. 896-2312 eða ss@aldirfasteignir.is
Júlíus Jóhannsson lögg.fasteignasali s. 823-2600 eða julius@aldirfasteignir.is
Andri Sigurðsson lögg.fasteignasali s. 690-3111 eða andri@aldirfasteignir.is

Eignin skiptist í: 
Forstofu, herbergjagang, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, sérgeymslu og stæði í bílgeymslu. 

Nánari lýsing á eign:
Forstofa er með innbyggðum fataskápum.
Herbergjagangur þaðan sem að gengið er í önnur rými íbúðar.
Stofa/borðstofa er opið og bjart rými og er útgengt á svalir úr stofu.
Eldhús er opið inní stofu, snyrtileg innrétting með eldunareyju, efri og neðri skápar, innbyggð uppþvottavél og ísskápur í innréttingu.
Tvö ágætis svefnherbergi og eru fataskápar í öllum herbergjum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, upphengt salerni, innrétting undir baðvask, Walk-in sturta með glerskilrúmi og handklæðaofn. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Þvottaaðstaða er inná baðherbergi en þar er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla á jarðhæð.
Stæði er í opinni bílgeymslu.
Gólfefni: Harðparket og flísar eru á gólfum eignar.

ATHUGIÐ AÐ MYNDIR Á VEF ERU AF SÝNINGARÍBÚÐ 301 OG ER SAMA SKIPULAG Í ÞESSARI ÍBÚÐ.
 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Áshamar 6 íb. 101

221 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð90,7 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
68.500.000 kr.755 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2526076Fasteignamat71.100.000 kr.Brunabótamat59.990.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑