Um eignina
Einstök íbúð á 10. og efstu hæð við Ásholt 2 í Reykjavík. Eignin er 3ja herbergja, 109,8 fm og er eina íbúðin á hæðinni - 2 bílastæði í bílageymslu fylgja, sem eru hlið við hlið. Húsvarsla er í húsinu. Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur, þaðan sem aðeins göngufæri er í lifandi mannlíf miðbæjarins og alla helstu þjónustu.
Úr lyftunni er komið inn í bjartan og teppalagðan gang með vestursvölum. Einstakt útsýni yfir vesturhluta Reykjavíkur.
Forstofa og hol er flísalagt með fataskáp.
Eldhúsið er með ljósri viðarinnréttingu, flísum á gólfi og glæsilegu útsýni til suðvesturs.
Stofan og borðstofan eru í opnu og björtu rými með glæsilegu útsýni og útgengi út á yfirbyggðar suður / suðvestur svalir.
Baðherbergið var endurnýjað 2023-2024 og er flísalagt með fallegri innréttingu með steinvaski og borði, steyptri sturtu með glervegg, handklæðaofni og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergin eru tvö með flísum á gólfi og fataskáp í hjónaherbergi.
Í sameign á jarðhæð er sérgeymsla íbúðar (6,9 fm) en hún er inn af öðru bílastæðinu í bílageymslu, mjög gott aðgengi. Hleðslustöð fylgir. Þvottaaðstaða er í bílageymslu.
Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi er í sameign á jarðhæð og önnur sameiginleg rými eins og hjólageymsla.
Sameiginlegur afgirtur garður er við húsið með leiktækjum fyrir krakka. Árið 2025 var þak endurbætt og nýlega var skipt um gler í allri íbúðinni.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson lgf í síma 896-2312 eða ss@aldirfasteignir.is
------------------------------------------------------------------------------------
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Ásholt 2
Staðsetning
Allar 45 myndir
Upp ↑











































