Um eignina
Virkilega falleg og mikið endurnýjuð 93 fm, 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í Hlíðunum í Reykjavík. Íbúðin og húsið hafa verið mikið endurnýjuð síðastliðin ár.
Nýlegar endurbætur á íbúð
2024 - 2025: Gólf allra íbúðarinnar flotað.Ofnar, neyslulagnir og frárennslislagnir endurnýjaðar. Hitalögn sett í gólf á baði. Allir ofnar nýir utan stofu ofna (pott ofnar) Bað flísalagt ný innrétting, ný blöndunartæki í vask og sturtu, nýr handklæðaofn. Nýtt parket á allri íbúðinni.
Ný eldhúsinnrétting ásamt tækjum. Nýjar hurðir. Allt rafmagn endurnýjað, nýir vírar í lögnum, nýir tenglar/rofar, ný rafmagnstafla í íbúðinni. Íbúðin máluð.
Nýlegar endurbætur á húsi
2023 - 2024: Suður og vesturhlið teknar í gegn og þær steinaðar. Múrviðgerðir, svalir endursteyptar, skipt um alla glugga, svalahurðir og útihurðir.
2025: Rafmagnstafla endurnýjuð, þvottahús og gangur málað. Þak/rishæð Þak klæðning endurnýjuð á völdum stöðum ásamt þak pappa, þak kvistur endurnýjaður. Þakjárn endurnýjað ásamt nýjum niðurfalsrörum. Allir gluggar endurnýjaðir, velux þakgluggar og kvist gluggar.
Lýsing íbúðar:
Hol er með parketi á gólfi og fatahengi
Stofan og borðstofan liggja saman með parketi á gólfi og hurðum í frönskum stíl sem aðskilja rýmin.
Eldhúsið er inn í borðstofunni með fallegri ljósri innréttingu og innbyggðri uppþvottavél. Útgengt á suðursvalir.
Svefnherbergin tvö eru með parketi á gólfi og er stærra herbergið mjög rúmgott með fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt með steyptri sturtu með glervegg, fallegri innréttingu, handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél.
Í sameign í kjallara er 1,9 fm geymsla íbúðarinnar ásamt sameiginlegum rýmum.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@aldirfasteignir.is
----------------------------------------------------------
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Mávahlíð 19
Staðsetning
Allar 32 myndir
Upp ↑






























