fasteignasölur.is
Stakkholt 2A
Opið hús 6. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 30

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir:
Vel skipulagða 2-3 herbergja íbúð á 4. hæð í góðu lyftuhúsi við Stakkholt 2a, með sér-bílastæði í lokuðum bílakjallara.
Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík.


Birt stærð samkv. Fasteignaskrá Íslands er 77,80 m2 og þar af geymsla 7,1 fm.

Nánari upplýsingar:
Eignin skiptist í anddyri, vinnuherbergi, eldhús, stofa, svalir, svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og bílastæði.
Andyri er opið með parket á gólfi og fataskap.
Vinnuherbergi/hol er með parket á gólfi
Eldhús myndar opið rými með stofu. Þar er innrétting, helluborð, háfur, uppþvottavél og vaskur. Parket á gólfi.
Stofa er með parket á gólfi og útgengt út á svalir til suðurs
Svefnherbergi er með rúmgóðum fataskápum og parket á gólfi.
Baðherbergi er með sturtu, salerni, vaskaskáp með rúmgóðum skúffum og skáp með spegli. Þar er einnig innrétting fyrir þvottavél og þurrkara með tengjum. Flísar á gólfi og á vegg hjá sturtu.
Sérgeymsla er í sameign skráð 7,1 m2.
Sér bílastæði er í lokuðum bílakjallara. Búið er að koma upp hleðslustöð við bílastæðið

Í sameign er sameiginleg hjóla og vagnageymsla.

Stutt í alla helstu þjónustu, fjöldi veitingastaða og Hlemmur mathöll. Bónus verslun er í göngufjarlægð og stutt í almenningssamgöngur. Leikskóla, grunnskóla og menntaskóla en í hverfinu eru einnig frábærar útivistarperlur, leiksvæði og lista- og menningarsöfn en þar má nefna Klambratún, Kjarvalsstaði, Öskjuhlíð, Nauthólsvík og Perluna.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr.  3.800.- kr. af hverju skjali.  
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.  
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Stakkholt 2A

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð77,8 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
75.500.000 kr.970 þ./m²
Byggingarár2014InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2350709Fasteignamat78.200.000 kr.Brunabótamat54.330.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑