fasteignasölur.is
Dalsmúli 3
1 af 24

Um eignina

Aldir Fasteignir og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Glæsileg nýleg 3ja herbergja íbúð á 3. hæð við Dalsmúla 3 í Reykjavík. Dalsmúli er mjög fallegt nýbyggt lyftuhúsnæði á Orkureitnum á einstaklega góðum stað í Laugardalnum með vandaðar Nobilia innréttingar frá GKS. Birt stærð skv. HMS: Íbúðin er 64,2 fm og geymslan 5,1 fm eða samtals: 69,3 fm. Möguleiki að leigja stæði í bílakjallara. 

Við hönnun íbúðarinnar var lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM vistvottunarkerfinu og hefur það fengið einkunina Excellent. Allar íbúðir við Dalsmúla hafa jafnframt fengið Svansvottun. Hver íbúð hefur jafnframt sitt eigið loftræstikerfi sem hægt er að stilla eftir þörfum og eykur loftgæði og sparar orku um leið. Hægt er að stýra kerfinu á bæði einfaldan máta á vegg eða með appi í snjallsíma. Rut Kára stýrir fágaðri hönnun innréttinga íbúða ásamt því að leggja línuna fyrir öll sameiginleg rými svo úr verður heildarmynd byggingar sem er engu lík. Allt hverfið í kringum Orkureitinn er í mikilli uppbyggingu.

Nánari lýsing eignar: Komið inn í forstofu / opið rými, fataskápur. Á hægri hönd við inngang er baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf, walk-in sturta, falleg innrétting, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhús og stofa í opnu rými. Glæsileg innrétting sem nær alveg upp í loft. Frá stofu er unnt að ganga út á svalir. Tvö svefnherbergi og eru þau bæði með fataskáp. Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign ásamt aðgengi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum.

Íbúðin er í nálægð við bæði verslunar- og þjónustukjarnana Skeifuna og Glæsibæ og í göngufæri við stærsta íþrótta- og afþreyingarsvæði í Reykjavík í hjarta Laugardalsins. Að auki er íbúðin á svæði sem er miðsvæðis í þróunarás Reykjavíkurborgar við væntanlega Borgarlínu.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@aldirfasteignir.is
 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Dalsmúli 3

108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð69,3 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
74.900.000 kr.1.081 þ./m²
Byggingarár2024InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2529877Fasteignamat63.100.000 kr.Brunabótamat43.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑