fasteignasölur.is
Bjarkarás 5
Opið hús 4. okt. kl. 14:00–14:30
1 af 37

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir: Gullfallega 4ra herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð. Aukin lofthæð er í íbúðinni sem gefur henni fallegt yfirbragð.  Eignin er með lokaða 28,3 fm timburverönd í vestur. Fallegt útsýni úr svefnherbergjum til austurfjalla. Íbúðin var mikið endurnýjuð 2020.  Allar upplýsingar veitir Dórothea fasteignasali s:8983326, dorothea@fstorg.is

Samkvæmt FMR er íbúðin skráð 121,1 fm með geymslu innan íbúðar. Íbúðin var upprunalega teiknuð sem 3ja herb. en er í dag 4ra herbergja. 2020 var endurnýjað eldhús, þvottahús, öll gólfefni ásamt innihurðum og fataskápum í forstofu, hjónaherbergi og stærra barnaherberginu. 
Sækja söluyfirlit hér.

Nánari lýsing: Flæðandi harðparket er í alrými, gangi og svefnherbergjum. Samskonar flísar í forstofu, baðherbergi og þvottahúsi/geymslu.
Komið er inn í forstofu með fallegum flísum og góðum fataskáp. Gengið er inn í stórt alrými eldhúss, borðstofu og stofu með gluggum eftir öllu rýminu. Eldhús er með mjög rúmgóðri hvítri innréttingu í L frá Kvikk með ljósum stein á borði. Spanhelluborð frá AEG. Tvöfaldur AEG Stálofn í vinnuhæð. Efri ofn er Combiofn/ örbylgjuofn og ofn. Innbyggður ísskápur og innbyggður frystir í sömu stærð. Innbyggð uppþvottavél. Góður búrskápur.  Rúmgóð og björt borðstofa og stofa með útgengi út á lokaða timburverönd í vestur. Frá gangi: Barnaherbergi með innbyggðum fataskáp. Rúmgott barnaherbergi með fataskápum. Rúmgott og bjart hjónaherbergi með fataskápum eftir heilum vegg. Baðherbergi er með stóru baðkari með sturtuaðstöðu, upphengt salerni og hvítri innréttingu með spegli fyrir ofan. Gengið er inn í þvottahús og geymslurými frá gangi með rennihurð. Þvottahús er með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Góð vinnuaðstaða með vaski.
Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla ásamt sorpgeymslu er í sér húsi næst íbúðinni. Sameiginleg bílastæði eru við fjölbýlið ásamt tveimur sameiginlegum hleðslustöðvum.
Hér er um að ræða rúmgóða fjölskyldueign með sérinngangi og einstaklega vel hirtum sameiginlegum garði efst á hæðinni í Ásahverfinu í Garðabæ. Strætó stoppar beint fyrir framan fjölbýlið og göngufæri í frekari almenningssamgöngur við Reykjavíkurveg. Allar frekari upplýsingar veitir Dórothea E. Jóhannsdóttir fasteignasali, dorothea@fstorg.is , s:898-3326.
 

Bjarkarás 5

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð121,1 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
104.900.000 kr.866 þ./m²
Byggingarár2006InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2284522Fasteignamat97.100.000 kr.Brunabótamat66.200.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑