fasteignasölur.is
Orrahólar 5
1 af 28

Um eignina

Árni Björn Erlingsson lgf. og Fasteignaland kynna eignina Orrahólar 5, 111 Reykjavík.

Eignin Orrahólar 5 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 204-9793, merkt 03-01, birt stærð 126.8 fm.

Um er að ræða vel skipulagða 4ja herbergja íbúð á 3ju hæð ásamt bílskúr í fallegu fjölbýlishúsi, sem hefur verið mikið endurnýjað. Eignin skiptist í 99.4 fm íbúð, 22.4 fm bílskúr og 5 fm geymslu.

Lýsing:
Forstofa:
Komið er inn í hol / miðrými eignar sem er með góðu skápaplássi og flísum á gólfi.
Stofa / borðstofa: er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt úr stofu á svalir.
Eldhús: er með fallegri innréttingu, eldavél, vaskur og uppþvottavél. Í eldhúsinu er borðkrókur og flísar eru á gólfi.
Baðherbergi: er með flísum á gólfi og snyrtileg innrétting, stór sturta, salerni, handklæðaofn, og gert ráð fyrir þvottavél og þurkara.
Hjónaherbergi: með góðu skápaplássi og parket á gólfi. 
Herbergi 2: rúmt með fataskáp og þar er parket á gólfi.
Herbergi 3: er lítið en með góðu skápaplássi og spónarparketi á gólfi.
Sér geymsla 5 fm og Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Bílskúr: 22.4 fm, bílskúrshurð með sjálfvirkum hurðaopnara.

Þetta er vel staðsett eign stutt í þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla.


Nánari upplýsingar veitir:
Árni Björn Erlingsson
Löggiltur fasteigna og skipasali.
arni@fasteignaland.is
898-0508

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á. 

Orrahólar 5

111 Reykjavík · Berg/Hólar/Fell
TegundFjölbýlishúsStærð126,8 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
79.900.000 kr.630 þ./m²
Byggingarár1978InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2049793Fasteignamat71.050.000 kr.Brunabótamat67.580.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifan 2, 108Sími599-6700

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑