Um eignina
Um er að ræða 815 fm fullbúið fiskvinnsluhús (skráð iðnaðarhúsnæði samkvæmt Þjóðskrá Íslands) á tveimur hæðum byggt árið 2002 við Hafnarstræti 23, 470 Þingeyri. Eignin er laus til afhendingar - ekkert áhvílandi.
Húsnæðið er einangrað og klætt að utan með bárujárni. Á jarðhæð hússins er vinnslusalur, karageymslu, lyftarageymsla, starfsmannaaðstaða, kæli- og frystuklefi. Jarðhæðin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 548 fm. Sérinngangur inn í húsnæðið að sunnanverðu, þar er stigi upp á efri hæð hússins þar sem eru geymslur, skrifstofa, baðherbergi og eldhús. Stór innkeysluhurð er á norðanverðum gafflinum. Húsinu fylgir stórt steypt plan fyrir gáma o.fl. og er það skráð 1.200 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Lóðin er skráð 2.570 fm. Húsnæðið hefur verið lítið notað upp á síðkastið og er ástand hússins mjög gott bæði að utan sem innan.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Hafnarstræti 23
Staðsetning
Allar 22 myndir
Upp ↑




















