Um eignina
Í einkasölu 4ra. herb.töluvert endurnýjaða enda íbúð á efstu hæð við Boðagranda í vesturbæ Reykjavíkur. Gluggar á þrem hliðum, tvennar svalir eru á íbúðinni og virkilega fallegt útsýni. Stæði í bílageymslu. Göngufæri við verslanir, skóla og helstu þjónustu bæði við Eiðistorg og Granda.
Birt stærð samkv. HMS 90,4 fm íbúð og 7,9 fm. geymslu. Birt stærð séreignar er 98,3 fm.
Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Ingibjörg lögg.fasteignasali s. 897-6717 eða inga@aldirfasteignir.is
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT
✅ Björt og mjög rúmgóð íbúð.
✅ Fallegt útsýni út á sjóinn.
✅ Tvennar svalir.
✅ Stæði í bílakjallara.
✅ Stutt í helstu þjónustu.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, sér geymslu og stæði í lokuðum bílakjallara.
Forstofa: Flísar á gólfi og innbyggður fataskápur.
Hjónaherbergi: Parketlagt með eldri fataskápum og útgengi út á svalir með fallegu útsýni út yfir sjóinn.
Barnaherbergi I: Parketlagt með fataskáp.
Barnaherbergi Il: Parketlagt með fataskáp.
Stofa/borðstofa: Er flísalögð með útgengi út á svalir. Búið er að stúka af hluta stofu og gera vinnurými en hægt að breyta aftur í upprunalegt horf.
Eldhús: Ljós viðar innrétting á tveim veggjum, flísalagt á milli skápa, flísar á gólfi og tengi fyrir uppþvottavél. Borðstofa í framhaldi af eldhúsi.
Baðherbergi: Flísalagt, baðkar með sturtuhaus. Endurnýjuð innrétting, gluggi og tengi er fyrir þvottavél og þurkara.
Geymsla: Sér geymsla er á jarðhæð (7,9 fm.) ásamt hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Bílastæði: í bílakjallara merkt B31. Bílakjallari er sameiginlegur með Boðagranda 1,3,5,og 7. Gengið er niður í hann eftir rampi á bílaplani.
Innihurðar og parket á herbergjum endurnýjað 2026.
Viðhald á húsi undanfarin ár samkvæmt seljanda:
2017 - Gluggar og gler yfirfarið í húsinu og skipt um það sem þurfti ásamt svalahurðum.
Gengið var frá rafmagnstengingu fyrir hleðslustöðvar við hvert stæði í bílakjallara.
2025 - Bílaplan malbikað og málað 2026
2026 - Á að mála húsið að utan í sumar ef veður leyfir (seljandi greiðir fyrir þann kostnað samkvæmt samþykktu tilboði)
Virkilega björt og fín íbúð með miklu útsýni á frábærum stað með stæði í bílakjallara. Stutt í helstu þjónustu og skóla. Fallegar göngu og hjólaleiðir í nágrenninu og meðfram sjávarsíðunni.
Húsgjöld eignar eru samtals kr. 34.039.- á mánuði en þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélaga, framkvæmdarsjóður,rekstur á bílakjallara, allur hiti, rafmagn í sameign.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Ingibjörg Agnes Jónsdóttir lögg.fasteignasali gsm: 897-6717 eða inga@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Boðagrandi 3
Staðsetning
Allar 39 myndir
Upp ↑





































