fasteignasölur.is
Höfðabakki 1
1 af 16

Um eignina

Aldir Fasteignir og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna TIL LEIGU: 

Mjög vel staðsett og áberandi 321,6 fm atvinnuhúsnæði á 1. hæð (efri hæð) á besta stað á Höfðanum. Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 321,6 fm og er skráð skv Þjóðskrá Íslands sem skrifstofuhúsnæði. Lofthæðin er um 3,7 m. Þess ber að geta að myndirnar að innan sýna þegar Heitir Pottar var starfrækt á sínum tíma í húsnæðinu. Laus til afhendingar.

Miklar endurbætur standa yfir á húsnæðinu í dag og verða þær kláraðar núna í sumar. Um er að ræða múrviðgerðir á veggjum. Rif og förgun á þakefni, þak pappalagt með tvöföldulagi af tjöruþakpappa. Útskipti allra glugga í húsinu og húsið klætt með fallegri álklæðningu.

Innkeyrsluhurð bakatil með góðri aðkomu. Húsnæðið býður upp á mikla möguleika og er mjög auðvelt að aðlaga húsnæðinu að þeirri starfsemi sem það mun hýsa. Aftari hluti húsnæðisins er lagerrými með innkeyrslu- og gönguhurð. Aðkoma frá bílaplani að framan, næg bílastæði. Snyrting og kaffiaðstaða fyrir miðju í húsnæðinu. Innst í rýminu er lagersalur og er aðkoma bakatil að lager sem er með innkeyrslu- og gönguhurð sem liggur um ramp og er gott athafnasvæði þar.

Gólfsíðir gluggar eru meðfram húsnæðinu sem snúa að gatnamótum Stórhöfða og Höfðabakka sem gefur húsnæðinu aukinn sýnileika og mikla möguleika til auglýsinga. Húsnæði sem gefur mikla möguleika til framtíðar.

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðunartíma veitir: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@aldirfasteignir.is


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Höfðabakki 1

110 Reykjavík · Árbær/Selás
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð321,6 m²
Tilboð
Byggingarár1989InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2043244
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 16 myndir

Upp ↑