fasteignasölur.is
Selás 5
1 af 17

Um eignina

Aldir Fasteignir og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Um er að ræða sumarhús í sumarhúsahverfi í landi Áfgerðarholts, um 6 km. vestur af Borgarnesi. Húsið er skráð skv skráningu HMS 92,9 fm og stendur á 4,397 fm eignarlóð. Húsið er byggt í tveimur áföngum. Húsið er timburhús og eru undirstöður steyptar súlur. Rafmagnskynding og rafmagnsofnar í gamla hlutanum en gólfhiti í nýrri hlutanum.

Eignin skiptist í forstofu, fjögur svefnherbergi, eldhús og stofu sem mynda alrými, svefnálmu og baðherbergi. Svefnloft er yfir hluta hússins.

Eldri hluti hússins var byggður 1990. Sá hluti hússins er mikið uppgerður. Gluggar hafa allir verið endurnýjaði og útihurð. Þá eru nýjar rennihurðir á tvo vegu úr stofu út á sólpallinn. Ný gólfefni, parket er á þessum hluta hússins. Eldhúsinnrétting er ný með innbyggðum ísskáp, uppþvottavél og helluborð. Tvö svefnherbergi með nýlegu parketi á gólfum. Þessi hluti hússins er kyntur með vegghengdum ofnum.

Viðbygging er með standandi timburklæðningu með hita í gólfum. Gengt er á tvo vegu út á sólpall. Rennihurð er úr svefnherbergisálmu út á aðalsvæðið með heitum potti. Í svefnálmu er baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf, vegghengt salerni og sturta, tvö svefnherbergi með parket á gólfum. Sólpallur er á með þremur hliðum hússins með skjólveggjum að hluta og heitum pottir. Lóðin er vel staðsett, kjarri vaxin, gott útsýni, leiktæki og lítill geymsluskúr.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@aldirfasteignir.is
 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Selás 5

311 Borgarnes (dreifbýli)
TegundSumarhúsStærð92,9 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
69.900.000 kr.752 þ./m²
Byggingarár1990InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2110815Fasteignamat42.250.000 kr.Brunabótamat58.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑