Um eignina
Um er að ræða virkilega fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í fallegu litlu fjölbýlishúsi við Víðimel 59 í Vesturbænum. Sameiginlegur inngangur sem e að eins notaður af tveimur íbúðum. Birt stærð skv HMS: Íbúðin er 70,9 fm merkt 02-02 ásamt 4,9 geymslu merkt: 00-04 og einnig annarri 0,5 fm geymslu merkt: 00-07, samtals 76.3 fm að stærð. Nýlega voru gluggar og gler endurnýjaðir í íbúðinni. Skólplagnir voru endurnýjaðir frá húsi og út í götu árið 2011. Stór sameiginlegur skjólgóður og fallegur garður í mikilli rækt sem snýr í suður.
Nánari lýsing eignar: Sameiginlegur inngangur. Á stigapalli fyrir framan íbúðina er geymsla með hillum. Komið er inn í forstofu / hol, fataskápur og fatahengi. Á vinstri hönd við inngang er rúmgott svefnherbergi I með fataskáp. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, sturta og gluggi. Björt og rúmgóð stofa. Eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu, borðkrókur og gluggi. Svefnherbergi II með parketi á gólfi, fataskápur. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. Eigninni fylgir geymsla á stigapalli ásamt kaldri geymslu undir tröppum og geymsluskáp í kjallara. Sameiginlegt snyrtilegt þvottahús, hver með sína vél.
Falleg eign á frábærum stað. Stutt í alla verslun og þjónustu og einnig skóla og leikskóla. Göngufæri við miðborgina, Háskóla Íslands og sundlaug Vesturbæjar.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Freyja Rúnarsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 694 4112 eða freyja@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Víðimelur 59
Staðsetning
Allar 27 myndir
Upp ↑

























