fasteignasölur.is
Grænaborg 6 íb 205
1 af 32

Um eignina

PRODOMO fasteignasala kynnir í sölu bjarta og vel skipulagða 92,2 fm fjögurra herbergja íbúð á efri hæð með sérinngangi og 4,9 fm suðursvölum að Grænuborg 6 í Vogum.
Um er að ræða virkilega snyrtilega og vandaða eign á efri hæð í nýlegu tveggja hæða fjölbýli. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu ásamt stofu og eldhúsi í björtu, opnu alrými. Útgengi er á góðar suðursvalir sem bjóða upp á mikla sól yfir daginn.

***Eignin getur verið laus við kaupsamning


Nánari lýsing
Forstofa: Sérinngangur, flísar á gólfi, góður fataskápur og fatahengi.
Hol: Tengir saman önnur rými íbúðarinnar með fallegu parketi á gólfi.
Eldhús: Falleg og vönduð hvít eldhúsinnrétting með heimilistækjum, gott borð- og skápapláss, opið við stofu. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa: Opið og bjart alrými í samflæði við eldhús með parketi á gólfi og beinu útgengi á suðursvalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi II: Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Svefnherbergi III: Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi / þvottaaðstaða: Flísar á gólfi og inni í sturtu. Snyrtileg innrétting með handlaug, upphengt salerni, handklæðaofn og rúmgóð „walk-in“ sturta. Tengi og aðstaða eru fyrir þvottavél og þurrkara.
Svalir: 4,9 m² svalir sem snúa mót suðri.

***Sérinngangur á efri hæð.
***4,9 fm svalir í suður með góðu útsýni og sól.
***Þrjú svefnherbergi og rúmgott alrými.
***Baðherbergi með „walk-in“ sturtu og aðstöðu fyrir þvottahús/þvottavél.


Grænaborg 6 er nýlegt og vandað tveggja hæða fjölbýlishús með 12 íbúðum. Húsið er vel einangrað og klætt að utan með varanlegri álklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald til framtíðar. Arkís arkitektar sáu um hönnun hússins og JÁVERK var byggingaraðili.

Virkilega snyrtileg, vel hönnuð og fjölskylduvæn eign á frábærum stað í vaxandi hverfi í Vogum sem vert er að skoða!

***Sýnum samdægurs***


Allar nánari upplýsingar veita:

Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
lilja@prodomo.is

Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
hakon@prodomo.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Grænaborg 6 íb 205

190 Vogar
TegundFjölbýlishúsStærð92,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
65.000.000 kr.705 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2516003Fasteignamat58.700.000 kr.Brunabótamat54.750.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnargötu 15, 230 ReykjanesbæSími420-4030

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑