fasteignasölur.is
Flúðasel 76
1 af 28

Um eignina

Aldir Fasteignir og Anna Sigurðardóttir Löggiltur fasteignasali sími: 898-2017 netfang: anna@aldirfasteignir.is kynna í einkasölu:

Sérlega vandaða og glæsilega endurnýjaða 4ra herbergja íbúð  með stórkostlegu útsýni á efstu hæð í góðu fjölbýlishúsi við Fífusel 76 í Seljahverfi.  Eignin skiptist í forstofu og hol, glæsilegt eldhús, 3 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og geymslu, auk þess er sér geymsla íbúðar í kjallara ásamt hjólageymslu og sameiginlegu þvottahúsi. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu.

Nánari lýsing:
Forstofa: Forstofan er opin með skemmtilegu fatahengi og lítil geymsla með hillum inn af forstofu. Flísar á gólfi
Hol: Innan af forstofu er sjónvarpshol þaðan sem gengið er inn í önnur rými íbúðar, veggfastur sjónvarpsskápur fylgir með ásamt fallegri lýsingu frá Lumex,  gráar flísar á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið er glæsilega innréttað með fallegri innréttingu frá HTH sem er sprautulökkuð með hvítu bílalakki, granít á borðum og granít sólbekkur í eldhúsglugga. Innfeldur vaskur og gaseldavél með 6 hellum frá Eirvík og háfur frá Mile. Góður borðkrókur er innst í eldhúsi við stóran glugga sem veitir fallegri birtu inn í rýmið, stórkostlegt útsýni í suður og suðvestur. Ljós í eldhúsi fylgja með. Gráar flísar á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum í suður og útgengi út á skjólsælar og sólríkar suður svalir sem eru klæddar harðviði að hluta og með sérsmíðuðum bekk og skáp fyrir gaskúta.  Veggfastur sjónvarpsskápur í stofu fylgir með ásamt veggljósum frá Lumex. Flísar á gólfi í stofu og á svölum.
Baðherbergi: Sérlega glæsilega endurnýjað baðherbergi með fallegri lýsingu, sturtubaðkari og wc á vegg.  Falleg hvít baðinnrétting með viðarborðplötu og vaski ofaná, stór spegill með lýsingu fyrir ofan innréttingu sem fylgir með. Flísar á gólfi og veggjum. 
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er búið háum og rúmgóðum fataskáp. Rúmgafl og náttborð eru sérsmíðuð og fylgja með ásamt lýsingu frá Lumex. Spónlagt parket á gólfi. 
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi með spónlögðu parketi.
Geymsla: Sér geymsla íbúðar með góðum hillum sem fylgja með er í sameign ásamt sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu. Skrúfuskápur fylgir ekki með.
Bílageymsla: Sérmerkt bílastæði með geymsluskápum sem fylgja með í lokari bílageymslu. Einnig er svæði sem eigendur bílageymslu nota til að að þrífa bíla sína.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og var m.a. klætt að utan 2005, skipt um pappa og járn 2014 og nú er verið að ljúka glugga og glerjaskiptum í öllu húsinu.

Einstaklega vel staðsett og skemmtileg eign í vinsælu fjölskylduvænu hverfi þar sem örstutt er í alla helstu þjónustu, Ölduselsskóla, leikskólana, Seljaborg, Seljakot, Jöklaborg og Hálsaskóg, íþróttasvæði Leiknis, Breiðholtslaug þar sem finna má bæði frábæra innilaug, útilaug, heita potta og vatnsrennibrautir. Í göngufjarlægð frá hverfinu er m.a. Elliðaárdalurinn ein fegursta náttúruperla borgarinnar með fjölbreyttum göngustígum, leiksvæðum og kaffihúsamenningu í Elliðaárstöð.

Allar frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir Löggiltur fasteignasali sími: 690 898-2017 netfang: anna@aldirfasteignir.is 
Sjón er sögu ríkari *** Bókaðu einkaskoðun hér ***

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Anna Sigurðardóttir lögg.fasteignasali s: 898-2017 eða anna@aldirfasteignir.is





 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Flúðasel 76

109 Reykjavík · Bakkar/Seljahverfi
TegundFjölbýlishúsStærð140,1 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
77.900.000 kr.556 þ./m²
Byggingarár1976InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2056761Fasteignamat67.950.000 kr.Brunabótamat59.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑