Um eignina
Fallega og mikið endurnýjaða 2ja herbergja íbúð á neðri hæð í sérlega glæsilegu tvíbýlishúsi á vinsælum og eftirsóttum stað við Hlíðarhjalla 50 í Kópavogi. Falleg aðkoma er að eigninni og skemmtilegt skjólsælt útivistarsvæði Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og er staðsett í fallegu umhverfi þaðan sem stutt er í verslanir, þjónustu, leikskóla, skóla og skemmtilega göngu-og hjólastíga. Eignin er skráð 64,3 fm að stærð og skiptist í forstofu og hol, bjarta og rúmgóða stofu, með gluggum í tvær áttir, úr stofu er útgengi út í sólríkan og skjólsælan garð sem snýr til suðurs. Fallegt nýlega endurnýjað eldhús þaðan sem innangengt er í þvottahús/búr og geymslu íbúðar. Flísalagt baðherbergi með sturtu og bjart svefnherbergi með skápum og parketi á gólfi.
Nánar um eignina:
Forstofa: Flísalögð og rúmgóð með fatahengi.
Hol: Með mjög góðu skápaplássi og nýlegu parketi.
Eldhús: Glæsileg ný hvít innrétting og tæki, tveir gluggar og nýlegt parket á gólfi.
Þvottahús/búr og geymsla: Mjög rúmgott og innangengt úr eldhúsi.
Stofa: Falleg björt stofa með útgengi út í sólríkan og skjólsælan garð sem snýr til suðurs.
Svefnherbergi: Bjart og fallegt með tveimur gluggum, góðu skápaplássi og nýlegu parketi á gólfi
Útigeymsla: Er undir útitröppum við inngang í íbúðina og er ekki inn í fermetratölu eignarinnar.
Árið 2023 var eignin mikið endurnýjuð, m.a. eldhús, innihurðir, ofnar og parket.
Hér er um að ræða frábær fyrstu kaup í glæsilegu sérbýli með sérinngangi við Hlíðarhjalla 50 í Suðurhlíðum Kópavogs á einstaklega veðursælum stað.
Allar frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir Löggiltur fasteignasali sími: 690 898-2017 netfang: anna@aldirfasteignir.is
Sjón er sögu ríkari *** Bókaðu einkaskoðun hér ***
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Anna Sigurðardóttir lögg.fasteignasali s: 898-2017 eða anna@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Hlíðarhjalli 50
Staðsetning
Allar 24 myndir
Upp ↑






















