fasteignasölur.is
Holtsvegur 10
1 af 25

Um eignina

Aldir fasteignir kynna til sölu bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð með stórum svefnherbergjum, aukinni lofthæð og skjólgóðum garðsvölum í nýlegu lyftuhúsi (bygg. ár 2017) að Holtsvegi 10, í Urriðaholti Garðabæ. Eignin er skráð 108,5m2 að stærð, þar af 100,1m2 íbúðarými og 8,4m2 geymsla, og samanstendur af anddyri, eldhúsi, stofu, tveimur stórum svefnherbergjum og baðherbergi auk sérgeymslu í kjallara og sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu. Eldhús og stofa eru í opnu alrými með útgengi á sólríkan og skjólgóðan sérafnotareit til suðurs. Falleg og vel skipulögð íbúð í nýlegu hverfi.
Ath. Íbúðin getur verið laus við undirritun kaupsamnings!

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is

Nánari lýsing.
Anddyri:
Þrefaldur fataskápur og parket á gólfi.
Eldhús: Sérsmíðuð innrétting, góð vinnuaðstaða, ofn í vinnuhæð, mikið skápapláss, innfelld uppþvottavél og ísskápur, eyja með rúmgóðum skúffum, helluborði og gufugleypi. 
Stofa: Björt og rúmgóð með, gólfsíðum gluggum, parketi á gólfi og útgengi á sérafnotareit eignar. 
Svefnherbergi: 18,7 m2 að stærð, fataskápar innan herbergis, gluggar á tvo vegu, parket á gólfi.
Svefnherbergi: 13.6 m2  að stærð, fataskápar innan herbergis, gluggi til vesturs, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og á veggjum, flísalagður sturtuklefi afmarkaður með glerskilrúmi, vegghengt WC og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameign: Í anddyri eru flísar en teppi í stigahúsi. Í kjallara er sérgeymsla íbúðar ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Fyrir framan hús er sameiginlegur garður, hiti í stéttum og á bílastæði er sameiginleg rafhleðslustöð. 

Innréttingar voru hannaðar af innanhússhönnuðunum Berglindi Berndsen og Helgu Sigurbjarnardóttur og voru sérsmíðaðar af Formus. 

Falleg og vel skipulögð eign í nýlegu hverfi þar sem stutt er í alla helstu verslun og þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is


                                                                          
 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Holtsvegur 10

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð108,5 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
81.900.000 kr.755 þ./m²
Byggingarár2017InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2354270Fasteignamat87.500.000 kr.Brunabótamat74.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑