fasteignasölur.is
Berjavellir 3
1 af 33

Um eignina

ALDIR Fasteignir og Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 / sveinn@aldirfasteignir.is kynna:
Um er að ræða rúmgóða, bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á jarðhæð á þessum vinsæla stað í Vallarhverfinu, Hafnarfirði.
Með íbúð er afgirt verönd til suð-austurs sem að er ca. 50 fm.
Stutt í alla þjónustu, s.s. skóla, leiksskóla, íþróttamiðstöð Hauka, Ásvallalaug og verslanir. 
ÍBÚÐ ER Í ÚTLEIGU TIL OG MEÐ 30.NÓV 2026 - ÁGÆTIS LEIGUTEKJUR.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 120.4 fm merkt 01-01-03 og geymsla er 6.8 fm merkt 01-00-13, samtals 127.2  fm að stærð.
Sameign í kjallara með hjóla/vagnageymslu.

Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@aldirfasteignir.is


Eignin skiptist í:
Forstofu/hol, sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, stofa/borðstofa, eldhús, baðherbergi, þvottahús og sér geymsla í kjallara.
Hjóla/vagnageymsla í sameign kjallara, gott bílaplan er framan við húseign.

Nánari lýsing á eign:
Forstofa með góðum fataskápum, gott sjónvarpshol.
Rúmgott eldhús með snyrtilegri eikar eldhúsinnréttingu og er eldunareyja í eldhúsi, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Björt og rúmgóð stofa/borðstofa með gluggum á tvo vegu og úr stofu er útgengt á rúmgóða og afgirta verönd til suð-austurs sem er ca. 50 fm.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi og eru fataskápar í öllum herbergjum.
Rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, vegghengt salerni, baðkar og sturtuklefi, snyrtileg innrétting með skúffum undir baðvask og þá er veggskápur fyrir ofan innréttingu og á vegg, handklæðaofn.
Rúmgott þvottahús með hillum og innréttingu undir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla í sameign og sameiginleg hjóla/vagnageymsla.
Gólfefni: Harðparket og flísar. 

Þetta er sérlega falleg eign sem vert er að skoða.
Öll rými íbúðar eru nokkuð rúmgóð. 

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignir.is

 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Berjavellir 3

221 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð127,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
79.900.000 kr.628 þ./m²
Byggingarár2006InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2281029Fasteignamat82.700.000 kr.Brunabótamat70.150.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑