Um eignina
Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagða þriggja herbergja 93.2 fm íbúð á jarðhæð með sérinngangi á þessum vinsæla stað í Rimahverfinu í Grafarvogi.
Húseignin stendur á jaðarlóð neðst í götunni og er afgirt sérverönd til suð-vesturs með íbúðinni.
Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttar, útivistarsvæði og stofnbrautir.
Búið er að setja upp rafhleðslustöðvar á bílaplan framan við hús.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er merkt 01-01-04, samtals 93.2 fm að stærð.
Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@aldirfasteignir.is
Eignin skiptist í:
Forstofu, hol, stofu/borðstofu, alrými, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi/geymsla innan íbúðar.
Nánari lýsing á eign:
Komið er inn um sérinngang af götu í forstofu með fataskápum.
Alrými þaðan sem að gengið er í önnur rými íbúðar er nokkuð bjart og rúmgott.
Stofa/borðstofa renna saman í opið rými og er útgengt á afgirta og skjólgóða suð-vestur verönd úr stofu.
Eldhús er hálf opið inn í borðstofu/alrými og snyrtileg eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum, flísar á vegg milli skápa að hluta, góður búrskápur á vegg, nýlegur ofn og helluborð í innréttingu, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og einföldum ísskáp.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með fataskápum alveg yfir vegg og upp í loft.
Barnaherbergi er við inngang þegar komið er inn úr forstofu og er fataskápur í herbergi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, snyrtilega innrétting með góðu skápaplássi í kringum vask og búið er að filma innréttinguna, baðkar með sturtuhengi og glerskilrúmi,
Þvottaherbergi/geymsla er innan íbúðar og er ágætis innrétting undir þvottavél og þurrkara.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla á jarðhæð.
Gólfefni: Harðparket og flísar á gólfum eignar.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Flétturimi 36
Staðsetning
Allar 27 myndir
Upp ↑

























