Um eignina
Um er að ræða algerlega endurnýjað og vel skipulagt 214.3 fm endaraðhús á tveim hæðum á þessum vinsæla stað í suður-hlíðum Kópavogs.
Húsið var teiknað af Sigvalda Thordarson arkitekt á sínum tíma og hefur hlotið viðurkenningu frá Kópavogsbæ fyrir endurbætur.
Gróin lóð, steypt bílaplan með hitalögn.
Fallegt útsýni er til suðurs / vesturs og austurs af efri hæð, ca. 50 fm svalir er út frá stofu og út frá hjónaherbergi.
Eignin hefur fengið mjög gott viðhald og endurnýjun hjá núverandi eigendum og má nálgast ítarlegan lista varðandi endurbætur hjá fasteignasala.
Birtar stærðir samkvæmt þjóðskrá íslands:
Íbúðarrými er 187.1 fm og innbyggður bílskúr 27.2 fm samtals 214.3 fm.
Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Eign skiptist í:
Forstofu/hol, fjögur svefnherbergi, gestabaðherbergi, aðalbaðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, þvottaherbergi, geymslu undir tröppum og innbyggðan bílskúr.
Nánari lýsing á eign:
Neðri hæð, komið er inn um aðalinngang á jarðhæð og inn í forstofu.
Hol til vinstri við forstofu með rúmum fataskápum og úr holi er inngengt í rúmgóðan bílskúr með gluggum og nýlegri rafdrifinni bílskúrshurð, eins er hurð úr holi út á bílaplan.
Gestabaðherbergi sem er nýlega standsett, Walk-in sturta, upphengt salerni, innrétting undir vask með skúffum, flísar á gólfi og veggjum.
Mjög rúmgott svefnherbergi er á jarðhæð sem að voru tvö herbergi áður og er auðvelt að setja upp vegg og fá tvö herbergi aftur en tvær hurðar eru til staðar, góðir opnanlegir gluggar á herbergjum.
Mjög rúmgott þvottaherbergi er á jarðhæð með nýlegri innréttingu undir þvottavél og þurrkara, neðri skápar og skolvaskur í borðplötu.
Steyptur stigi með niðurlímdu parketi er uppá efri hæð úr forstofu og eru glerskilrúm í kringum stigarými.
Komið er uppí opið rými og liggja eldhús, borðstofa og stofa saman í einu opnu og björtu rými og er útgengi á ca. 50 fm panelklæddar svalir úr stofu, heitt og kalt vatn á svölum.
Stofa og borðstofa er rúmgott rými og nýtist vel
Eldhús með snyrtilegri U-laga eldhúsinnréttingu með vönduðum tækjum, efri og neðri skápar og flísar á vegg milli skápa í eldhúseyju er innfellt helluborð og nýtist eldhúseyja til þess að sitja við, innbyggð uppþvottavél og ísskápur í innréttingu, steinn er í borðplötum í innréttingu.
Herbergjagangur er á vinstri hönd þegar komið er upp stigarými og innaf honum er aðalbaðherbergi, hjónaherbergi og barnaherbergi.
Barnaherbergi er innaf gangi með fataskáp og voru tvö herbergi þar áður.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott og er fataherbergi innaf hjónaherbergi, útgengi úr svefnherbergi út á rúmgóðar svalir.
Baðherbergi er mjög rúmgott með flísum á gólfi og veggjum, baðkar og Walk-in sturtuklefi, upphengt salerni, góð innrétting er undir vask og er steinn í borðplötu á baðherbergi.
Innbyggður bílskúr með rafdrifinni bílskúrshurð, heitt og kalt vatn, búið er að leggja fyrir rafbílahleðslustöð.
Gólfefni: Parket, flísar og flotað gólf á eign.
VIÐURKENNING SIGVALDAHÚS.
Frétt af vef Kópavogs 16.sept 2025 varðandi Hrauntungu 77.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Hrauntunga 77
Staðsetning
Allar 42 myndir
Upp ↑








































