Opið hús 7. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 25Um eignina
Einstaklega falleg og vönduð 4ra herbergja neðri sérhæð í nýlegu tvíbýlishúsi í grónu og eftirsóttu hverfi
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 113,4 m² einstaklega fallega og vel skipulagða 4ra herbergja neðri sérhæð í tvíbýlishúsi við Eikjuvog 27 í Reykjavík. Húsið er byggt árið 2020 og hér sameinast kostir nýlegrar og vandaðrar eignar við einstaka staðsetningu í gróðursælu/gömlu og rótgrónu hverfi.
Íbúðin er björt og vel skipulögð með þremur góðum svefnherbergjum og fallegu opnu alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda hjarta heimilisins. Úr stofu er gengið beint út á sérafnotareit neðri hæðarinnar með viðarpalli, heitum potti og útisnúrum. Eignin er með vönduðum innréttingum, gólfhita og loftræstikerfi.
- Nýleg og vönduð eign frá 2020 í grónu og eftirsóttu hverfi
- Þrjú góð svefnherbergi
- Sérafnotareitur með viðarpalli, heitum potti og útisnúrum
- Vandaðar innréttingar, gólfhiti og loftræstikerfi
Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is.
Íbúðin er skráð 113,4 m² samkvæmt HMS og telst 4ra herbergja. Húsið er byggt árið 2020. Útveggir eru einingasteyptir, einangraðir að utan með steinull og klæddir með lituðu báruáli.
Innréttingar í eldhúsi og fataskápum eru frá GKS, framleiddar af Nobilia í Þýskalandi. Íbúðin er með sjálfstæðu loftræstikerfi þar sem hægt er að stýra loftskiptum og gólfhiti er með Danfoss gólfhitastýringu ásamt forhitara á neysluvatni.
Eignin stendur á sameiginlegri leigulóð og neðri hæðinni fylgir sérafnotareitur með viðarpalli við íbúðina. Góð bílastæði eru við húsið og gert er ráð fyrir bílhleðslu.
Nánari lýsing:
Komið er inn í parketlagt anddyri með fataskápum. Við anddyri er tæplega 4 m² geymsla sem veitir gott geymslupláss innan íbúðar.
Frá anddyri er gengið inn á herbergjagang. Svefnherbergin eru þrjú, öll með fataskápum og tveimur nettenglum í hverju herbergi.
Baðherbergið er vandað og fallega frágengið. Þar er upphengt salerni með innbyggðum vatnskassa, handlaug á borðplötu með vönduðum blöndunartækjum og góð innrétting. Fallegar flísar eru á gólfi og veggjum, einhalla sturtubotn með glerskilrúmi og innbyggðum blöndunartækjum ásamt handklæðaofni. Á baðherberginu er jafnframt aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa, borðstofa og eldhús mynda einstaklega fallegt og bjart alrými sem er hjarta íbúðarinnar. Skipulagið nýtir fermetrana sérlega vel og stórir gluggar skapa góða tengingu milli innirýmis og útisvæðis. Úr stofu er gengið beint út á viðarpall og sérafnotareit neðri hæðarinnar.
Eldhúsið er vandað og vel skipulagt með góðri innréttingu, fallegri viðarklæðningu milli efri og neðri skápa og lýsingu undir efri skápum. Keramikhelluborð er á eldunareyju og skápapláss er mjög gott. Innfelld lýsing er í eldhúsi og þar eru veggofn, keramikhelluborð, háfur, ísskápur og tengi fyrir uppþvottavél.
Parket er á gólfum íbúðarinnar fyrir utan baðherbergi sem er flísalagt.
Sérafnotareitur og garður: Úr alrýminu er gengið beint út á sérafnotareit neðri hæðarinnar með viðarpalli. Þar er heitur pottur og útisnúrur sem skapa notalega útivistaraðstöðu í beinu framhaldi af heimilinu.
Lóðin er falleg og gróin með fullvöxnum trjám og fellur vel að rótgrónu umhverfi hverfisins. Í garðinum er jafnframt útiskúr sem er sameiginlegur með efri hæð.
Bílastæði og aðkoma: Bílastæði og gönguleiðir að íbúðum eru steypt og með snjóbræðslukerfi. Góð bílastæði eru við húsið og gert er ráð fyrir bílhleðslu. Sameiginlegt sorpgerði er við bílastæðin ásamt póstkössum.
Staðsetning og umhverfi: Eikjuvogur er einstaklega vel staðsettur í grónu og eftirsóttu hverfi í Vogunum. Hér sameinast kostir nýlegrar og vandaðrar eignar og rótgróins hverfis með fullvöxnum gróðri og fallegu nærumhverfi.
Stutt er í leik- og grunnskóla, verslun og fjölbreytta þjónustu. Staðsetningin býður því upp á notalegt íbúðarumhverfi með góða tengingu við þjónustu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Eikjuvogur 27
104 Reykjavík · Vogar
TegundHæðStærð113,4 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
112.900.000 kr.996 þ./m²
Byggingarár2020InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2507939Fasteignamat96.100.000 kr.Brunabótamat70.850.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 25 myndir
Upp ↑