fasteignasölur.is
Huldugil 50
1 af 34

Um eignina

Kasa fasteignir 461-2010.

Huldugil 50 - Góð og nokkuð uppgerð 4 herbergja 105,7 fm enda-raðhúsaíbúð á einni hæð á vinsælum stað í Giljahverfi.

Eignin skiptist í forstofu, þvottahús/geymslu, hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofu, borðstofu og eldhús. Úr stofu er gengið út á verönd til vesturs. 

Forstofa
er með flísum á gólfi. Þar er hvítur fataskápur og opið fatahengi. 
Úr forstofu er innangengt í þvottahús og þaðan er búið að opna inn í geymslu, en allt rýmið er nýtt sem skrifstofa í dag. Þar eru flísar á gólfum, opnanlegur glugggi og skápur með rennihurðum. Inni í honum er lítil innrétting með vaski og pláss fyrir þvottavél og þurrkara. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfum og fataskápum. 
Baðherbergi var gert upp árið 2017. Þar eru flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting, upphengt salerni, sturta með gler-skilrúmi og handklæðaofn. Á veggnum gegnt baðinnréttingunni er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, sem hægt er að loka fyrir með fellihurðum. Hiti er í gólfi á baðherberginu.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í björtu og opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á timbur-verönd sem snýr í vestur. Eldhús var gert upp árið 2017. Þar er rúmgóð, ljós innrétting með innbyggðri uppþvottavél og ísskáp, ásamt bakaraofni og comby-ofni í vinnuhæð. 

-Hiti er í gólfum, nema í svefnherbergjum, þar eru ofnar. 
-Eldhús og baðherbergi voru endurnýjuð 2017.
-Sturtutæki eru ný síðan 2026.
-Allt gler og gluggalistar endurnýjað 2026.
-Geymsluskúr er á lóð.
-Búið er að leggja fyrir heitum potti á verönd. 
-Frábær staðsetning í Giljahverfi. 

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.

Huldugil 50

603 Akureyri (utan Glerár)
TegundRað-/parhúsStærð105,7 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
82.900.000 kr.784 þ./m²
Byggingarár1994InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2216472Fasteignamat72.300.000 kr.Brunabótamat62.200.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangRáðhústorgi 1, 600 AkureyriSími461-2010

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑