fasteignasölur.is
Bárusker 4
1 af 34

Um eignina

PRODOMO fasteignasala kynnir í sölu bjarta og vel skipulagða 78,6 fm þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngang og verönd að Bárukeri 4 í Suðurnesjabæ. Íbúðarrýmið er 75,7 fm og sérgeymsla í sameign 2,9 fm.
Um er að ræða afar vandaða og snyrtilega eign á jarðhæð með gólfhita í öllum rýmum, innréttingum frá HTH og timburverönd með skjólveggjum.


Nánari lýsing
Forstofa: Flísar á gólfi og góður forstofuskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, falleg innrétting frá HTH með uppþvottavél, ísskáp og bakarofni í þægilegri vinnuhæð.
Stofa: Parket á gólfi, björt og rúmgóð með útgengi út á afgirta timburverönd með skjólveggjum.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Barnaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi / þvottaaðstaða: Flísalagt í hólf og gólf. Innrétting við vask, rúmgóð „walk-in“ sturta og vönduð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla: 2,9 fm sérgeymsla í sameign.

***Jarðhæð, sérinngangur og verönd með skjólveggjum. 
***Gólfhiti í allri íbúðinni.
***Vandaðar innréttingar frá HTH 
***Rúmgott baðherbergi með „walk-in“ sturtu og sérinnréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
***Tvö svefnherbergi, bæði með fataskápum.


Vönduð og falleg eign á jarðhæð á góðum stað í Suðurnesjabæ sem vert er að skoða.

Allar nánari upplýsingar veita:
Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
lilja@prodomo.is

Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
hakon@prodomo.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Bárusker 4

245 Sandgerði
TegundFjölbýlishúsStærð78,6 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
54.900.000 kr.698 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2524697Fasteignamat39.200.000 kr.Brunabótamat43.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnargötu 15, 230 ReykjanesbæSími420-4030

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑