fasteignasölur.is
Höfðastígur 20
1 af 21

Um eignina

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna:
Glæsileg 4ra herbergja,  151,3 fm efri sérhæð með bílskúr í tvíbýlishúsi með miklu útsýni til allra átta í Bolungarvík.  Íbúðin er mikið endurnýjuð á afar smekklegan hátt.  Íbúðarrými 119 fm og bílskúr 32,3 fm. Gólfhiti.  


Nánari lýsing eignar:
Forstofa er á 1. hæð og þaðan er stigi upp í íbúðina.
Hol með flísum á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergin eru þrjú og öll flísalögð með fataskápum.
Stofan er björt og falleg með flísalagt gólf og þaðan er útgengt út á rúmgóðar suðursvalir með útsýni.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu með innbyggðum tvöföldum ísskáp og frysti ásamt eldhúseyju með span-helluborði.  Borðkrókur í eldhúsi.
Þvottahús með innréttingu er inn af eldhúsi.
Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu og steyptri sturtu með glervegg.

Bílskúrinn er rúmgóður með rafdrifinni bílskúrshurð og annarri hurð norðan meginn. Möl í bílaplani framan bílskúrs.

Sér rafmagns- og hitamælir fyrir hvora eign.  Lóðin er stór og snyrtileg.

Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@aldirfasteignir.is


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Höfðastígur 20

415 Bolungarvík
TegundHæðStærð151,3 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
50.900.000 kr.336 þ./m²
Byggingarár1966InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2121478Fasteignamat35.150.000 kr.Brunabótamat69.170.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑