fasteignasölur.is
Hverfisgata 54
1 af 23

Um eignina

ALDIR Fasteignir og Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 / sveinn@aldirfasteignir.is kynna:
Um er að ræða mjög flott og mikið endurnýjað 136.1 fm RETRO skrifstofuhúsnæði á 3. hæð (frá Hverfisgötu) með aðgengi beint af jarðhæð frá Laugavegi 39 um port og er hlið inn í portið.
Fjölbreyttir möguleikar með húsnæðið þar sem að það eru íbúðir í húsinu í dag og mögulega fengist að breyta húsnæði í íbúð. 
Fyrir liggur umsögn frá byggingarfulltrúanum í Reykjavík frá 31.október 2025 en þar segir:
"Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir um að sótt sé um byggingarleyfi fyrir því að skrifstofu verði breytt í íbúð enda í samræmi við aðal- og deiliskipulag."

MEÐ HÚSNÆÐI FYLGJA ÞRJÚ BÍLASTÆÐI SAMKVÆMT EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGU.
EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:

Íbúð er 136.1 fm merkt 01-03-02. 
Með húsnæði fylgja þrjú sérmerkt bílastæði samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu.

Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@aldirfasteignir.is

Eignin skiptist í:
Forstofu/hol, þrjú góð opin skrifstofurými/stofur, ein aflokuð skrifstofa/herbergi, rúmgott eldhús og baðherbergi.
Þrjú sérmerkt bílastæði.

Nánari lýsing:
Inngangur er beint inn af bílaplani Laugavegs megin en einnig er inngangur frá Hverfisgötu 54 inn í sameiginlegan stigagang, lyfta frá jarðhæð þaðan og upp á 2.hæð.
Húsnæðið er að mestu opið skrifstofurými með gluggum á tvo vegu og aukinni lofthæð.
Ein aflokuð skrifstofa/herbergi með gluggum til norðurs.
Snyrtilegt og rúmgott eldhús, eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum, innbyggð uppþvottavél og ísskápur í innréttingu sem að selst með. 
Baðherbergi er snyrtilegt með flísum á gólfi og veggjum, vegghengt salerni, innrétting undir vask og þá er sturta á baðherbergi.
Þrjú sérmerkt bílastæði sem eru á plani framan við eignina með aðkomu um port frá Laugavegi 39. 
Húsnæðið er mikið endurnýjað s.s. gólfefni, baðherberg, eldhúsinnrétting, raflagnir, ljós og tenglar.
Gólfefni: Vinylparket og flísar á gólfum.

Milliveggir eru allir léttir í húsnæðinu og því er einfalt að breyta og bæta.
Skemmtilegir gluggar eru efst á milli veggjum sem að hleypa birtunni skemmtilega í gegn á mill rýma.

EKKI ER STARFRÆKT HÚSFÉLAG Í EIGNINNI.
 
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignir.is

 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Hverfisgata 54

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð136,1 m²Herbergi3Svefnherb.1Baðherb.1
105.000.000 kr.771 þ./m²
Byggingarár1978InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2004719Fasteignamat64.800.000 kr.Brunabótamat60.550.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑