1 af 27
Um eignina
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Stórholt 3 - Rúmgóð og vel skipulögð 5 herbergja efri sérhæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr - stærð 173,9 m² þar af er bílskúr skráður 27,2 m²
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu og borðstofu í alrými, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Forstofa er með flísum á gólfi. Úr forstofu liggur steyptur og teppalagður stigi upp á efri hæðina.
Eldhús hefur verið endurnýjað. Vönduð sérsmíðuð innrétting, hvíttuð eik og hvít og með dökkri borðplötu. Siemens helluborð og ofnar. Mjög gott skápa- og bekkjarpláss. Flísar eru á gólfi og gólfhiti.
Stofa og borðstofa eru í alrými þar sem ljóst harðparket er á gólfum og gluggar til þriggja átta. Hurð er út á steypar suður svalir.
Gangur er með ljósu harðparketi á gólfi og stórum fataskáp með rennihurðum.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, sérsmíðuð innrétting, wc, baðkar með sturtutækjum og opnanlegur gluggi.
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú ágætlega rúmgóð og eitt minna. Ljóst harðparket er á gólfum í öllum herbergjum og fataskápar í þremur. Gluggar í tveimur stærri barnaherbergjum voru endurnýjaðir árið 2018.
Þvottahús er inn af eldhúsinu og var það endurnýjað á sama tíma. Þar eru eins flísar á gólfum, gólfhiti og sérsmíðuð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og skolvaska. Opnanlegur gluggi er í þvottahúsinu og hleri í loftinu upp á loftið.
Bílskúr er skráður 27,2 m² að stærð og er sambyggðu með bílskúr neðri hæðar, léttur veggur er á milli eignarhluta.
Sér gönguhurð er á langhliðinni og innkeyrsluhurðin er með rafdrifnum opnara. Gólf er lakkað. Heitt og kalt rennandi vatn og lögn fyrir wc. Fyrir framan bílskúrinn er malbikað bílaplan.
Annað
- Lóðin er í sameign, skráð 861,8 m² að stærð.
- Þak var málað fyrir um 4 árum.
- Í þvottahúsinu eru búið að setja upp gólfhitakistu sem nægir fyrir alla hæðina en búið er að leggja í þvottahús og eldhús.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Stórholt 3 efri hæð
603 Akureyri (utan Glerár)
TegundHæðStærð173,9 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
86.900.000 kr.500 þ./m²
Byggingarár1971InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2150897Fasteignamat76.800.000 kr.Brunabótamat81.450.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 27 myndir
Upp ↑