fasteignasölur.is
Skarðsbraut 9
Opið hús 7. okt. kl. 16:30–17:00
1 af 21

Um eignina

** Opið hús miðvikudaginn 7.október frá kl. 16:30 til 17:00 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 **
 
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skiplögð 145,8 m2, 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi með bílskúr við Skarðsbraut 9 á Arkanesi. Eignin er skráð 145,8 m2, en þar af íbúð 93,4 m2, geymsla 20,9 m2 og bílskúr 31,5 m2. Svalir í suðurátt. Góð staðsetning miðsvæðis á Akranesi þar sem stutt er í verslun, þjónustu, leikskóla og grunnskóla. Íbúðin er ný uppgerð og hefur skipulagi verið breytt. Öll loft í íbúðinni hafa verið tekin niður og sett innbyggð lýsing. 


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:
Eldhús með innréttingu og eyju. Í innréttingu eru tveir ofnar, helluborð og vaskur.
Þvottahús er með innréttingu, vask og flísum á gólfi.
Baðherbergi nr. 1 er með baðkari, sturtu, vegghengdu salerni og innbyggðum blöndunartækjum.
Svefnherbergi nr. 1-3 eru rúmgóð. Úr hjónaherbergi er innangent inn á baðherbergi nr. 2 með vegghengdu salerni og sturtu með innbyggðum blöndunartækjum.
Stofa er með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðurátt. Búið er að skipta um svalahurð, glugga og glugga í svefnherbergi (árið 2019). 
Geymsla/herbergi í kjallara, sem hentar unglingum. Salernis aðstaða er í kjallara.
Bílskúr er með rafmagni, heitu- og kölduvatni. Er skráður 31,5 m2.  Malbikað bílaplan
Sameiginleg hjólageymsla í kjallara.
Hússjóður á mánuði ca. kr. 35.000,-  Innifalið er ræsting sameignar.

Annað: Sameign í kjallara mjög snyrtileg. Endurnýjað tréverk, gler/glugga að hluta, opnanlegir gluggar endurn. Þakjárn og þakkantur endurnýjað árið 2005. Hús sprunguviðgert að utan árið 2016. Stofnlagnir endurnýjaðar. Neysluvatnslagnir í kjallara endurnýjaðar árið 2005 og lagnir upp í hverja íbúð endurnýjaðar ca. árið 2014. Varmaskiptir endurnýjaður árið 2016. Dren endurnýjað árið 2015 (suður, austur og vesturhlið). Stigahús málað og stigi teppalagður ca. árið 2015. Sameign í kjallara er mjög snyrtileg. Dyrasímar og póstkassar í sameign endurnýjað ca. árið 2018. Útidyrahurðir endurnýjaðar í sameign og gler í sameign árið 2021.

Verð. kr. 67.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Skarðsbraut 9

300 Akranes
TegundFjölbýlishúsStærð145,8 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
67.900.000 kr.466 þ./m²
Byggingarár1976InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2100680Fasteignamat60.600.000 kr.Brunabótamat62.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑