fasteignasölur.is
Elliðabraut 18
Opið hús 6. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 29

Um eignina

ELLIÐABRAUT 18 – FALLEG 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ BÍLASTÆÐI Í BÍLAKJALLARA OG RÚMGÓÐUM SVÖLUM MEÐ SVALALOKUN!
RE/MAX og Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, kynna fallega, bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi við Elliðabraut 18, íbúð 302, í Norðlingaholti. Eigninni fylgir bílastæði í bílakjallara og rúmgóðar, 12,5 fm svalir með svalalokun.
Eignin er samtals 77,1 fm, þar af er íbúðarrými 72,9 fm og sérgeymsla í kjallara 4,2 fm.

Eignin er staðsett í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun og fjölbreytta útivist. Náttúruperlur á borð við Elliðavatn, Rauðavatn og Heiðmörk eru í næsta nágrenni.
Skoðaðu eignina í 3D hér.  
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali, sími: 820-0490, netfang: gudrun@remax.is
Nánari lýsing eignar
Forstofa: Björt og snyrtileg forstofa með harðparketi á gólfi og rúmgóðum þreföldum fataskáp.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart hjónaherbergi með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi: Barnaherbergi með harðparketi á gólfi og tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi með vandaðri innréttingu, upphengdu salerni opinni sturtu. Flísar eru á gólfi og veggjum að hluta upp í loft. Hreinlætistæki og handklæðaofn eru frá BYKO. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús: Fallegt og vel skipulagt eldhús með góðu skápaplássi og harðparketi á gólfi. Eldhúsið er búið vönduðum tækjum, meðal annars helluborði, blástursofni og gufugleypi frá AEG ásamt innbyggðri uppþvottavél. Vaskur frá Grohe og blöndunartæki frá BYKO.
Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott alrými þar sem aukin lofthæð og stórir gluggar njóta sín. Harðparket er á gólfi og úr stofu er gengið um rennihurð út á rúmgóðar, 12,5 fm svalir með svalalokun.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara, skráð 4,1 fm.
Bílastæði: Eigninni fylgir bílastæði í bílakjallara.
Húsið og sameign
Húsið var byggt árið 2020 af MótX og er lögð áhersla á vandaðar innréttingar, góða hljóðvist og loftgæði.
Íbúðin er meðal annars búin harðparketi frá Birgisson, hvítum fataskápum frá Axis sem ná upp í loft og innfelldri lýsingu frá Rafkaup.
Sérstakt loftræstikerfi með varmaendurvinnslu er í íbúðinni. Kerfið tekur inn ferskt loft að utan og dreifir því um vistarverur íbúðarinnar en sogar jafnframt loft úr baðherbergi og eldhúsi. 
Sameign hússins er björt og rúmgóð og lyfta er í húsinu. Í kjallara eru sérgeymslur ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. 
Á lóðinni eru djúpgámar með flokkunaraðstöðu.

Staðsetning og nærumhverfi:
Norðlingaholt er fallegt og fjölskylduvænt hverfi þar sem náttúran er nánast við útidyrnar. Í næsta nágrenni eru fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir um Elliðavatn, Rauðavatn, Rauðhóla og Heiðmörk.
Stutt er í Norðlingaskóla, leikskólann Rauðhól og Bónusverslun. Í nærumhverfinu eru einnig skemmtileg leiksvæði, Björnslundur og falleg tjörn sem setur notalegan svip á hverfið.
Hér er því tilvalið að búa fyrir þá sem vilja njóta nálægðar við náttúruna án þess að vera langt frá helstu þjónustu höfuðborgarsvæðisins.
Helstu kostir eignarinnar
  • Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð.
  • Aukin lofthæð og stórir gluggar.
  • Rúmgóðar, 12,5 fm svalir með svalalokun.
  • Bílastæði í bílakjallara.
  • Lyftuhús byggt árið 2020.
Sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Frábær staðsetning í nálægð við náttúru og þjónustu.
Nánari upplýsingar og bókun skoðunar:

Guðrún Þórhalla Helgadóttir Löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX Sími: 820-0490 Netfang: gudrun@remax.is

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Elliðabraut 18

110 Reykjavík · Árbær/Selás
TegundFjölbýlishúsStærð77,1 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
76.900.000 kr.997 þ./m²
Byggingarár2020BílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2507877Fasteignamat68.400.000 kr.Brunabótamat66.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑