Um eignina
Fallega og bjarta 2ja herbergja íbúð á 3. hæð með s/v svölum og fallegu útsýni til vesturs og í átt að Esjunni.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu í einu rými, svefnherbergi, baðherbergi, geymslu innan íbúðar en henni fylgir einnig sameiginlegt þvottahús og hlutdeild í sameign.
Birt stærð samkv. HMS 48,1 m².
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT eða nánari upplýsingar og skoðunartíma veitir Ingibjörg Agnes í síma 897-6717 eða inga@aldirfasteignir.is
✅ Frábært fyrsta eign.
✅ Björt íbúð með svölum og útsýni.
✅ Tvennar lyftur í húsinu.
✅ Nálægð við Laugardalinn.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol: Er með nýlegu harðparketi.
Eldhús: Er með L-laga nýlegri hvítri innréttingu, hvítar flísar á milli skápa.
Stofa/borðstofa: Er með harðparketi á gólfi. Útgengt út á svalir.
Svefherbergi: Er með harðparketi á gólfi. Mjög góðum nýlegum fataskápum.
Baðherbergi: Er með góðri sturtu m/gleri, vaskaskáp og klósetti. Flísar í hólf og gólf. Gluggi á baði.
Þvottahús: Er í sameign á jarðhæð þar sem sameiginlegar þvottavélar og þurkarar eru.
.
2018 var íbúðin meira og minna endurnýjuð að innan. Eldhús, bað, gólfefni, rafmagnsefni, sett eldvarnarhurð fram á gang, nýr fataskápur, veggur endurgerður á milli herbergis og eldhúss.
Virkilega fín eign sem vert er að skoða á frábærum stað miðsvæðis í Reykjavík þar sem öll helsta þjónusta, almenningssamgöngur og skólar eru stutt frá.
Húsgjöld eignar eru samtals kr.31.875 - á mánuði en þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélags, allur hitakostnaður, rafmagn í sameign, húseigendatryggin,þrif sameignar, þrif á sorpgeymslu, laun húsvarðar.
Nánari upplýsingar og skoðunartíma veitir Ingibjörg Agnes í síma 897-6717 eða inga@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Austurbrún 4
Staðsetning
Allar 26 myndir
Upp ↑
























