fasteignasölur.is
Breiðvangur 26
1 af 24

Um eignina

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Rúmgóða 6 herbergja íbúð á 2. hæð í snyrtilegu fjölbýli við Breiðvang 26 í norðurbæ Hafnarfjarðar. Róleg og fjölskylduvæn staðsetning í göngufæri við skóla, leikskóla og verslun. 

Eignin er skráð 134,1 fm skv. HMS, þar af er 13,9 fm sérgeymsla. Auk þess eru geymslupláss í sameiginlegu rými hússins.

Nánari lýsing eignar:

Flísalögð forstofa með fataskáp. 
Rúmgott eldhús með stórri eyju. Hvít eldhúsinnrétting með miklu skápaplássi. Borðkrókur. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Rúmgóð og björt stofa. Útgengt þaðan út á svalir sem snúa í suðurátt. 
Hluta af stofu/sjónvarpsholi hefur verið breytt í fimmta svefnherbergið. 
Svefnherbergisgangur. 
Rúmgott hjónaherbergi með fataskáp. Útgengt þaðan út á svalirnar. 
Þrjú svefnherbergi. Öll með fataskáp. 
Flísalagt baðherbergi með innréttingu með handlaug, upphengt salerni og sturta. Gluggi á baðherberginu.
Sérgeymsla í kjallara auk geymslurými í sameiginlegu rými. 

Nýlegt parket á gólfi í stofu og svefnherbergjum.

Skv. upplýsingum frá seljanda hafa eftirfarandi viðgerðir staðið yfir síðastliðin 5 ár.
- Húsið múrviðgert og málað að utan
- Skipt um járn og pappa á þaki
- Skipt um glugga að hluta til innan íbúðar 

Allar nánari upplýsingar gefur Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is 


Teikning hefur verið unnin með hjálp gervigreindar

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Breiðvangur 26

220 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð134,1 m²Herbergi5Svefnherb.5Baðherb.1
79.900.000 kr.596 þ./m²
Byggingarár1974InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2073974Fasteignamat76.100.000 kr.Brunabótamat65.150.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 10, 220 HafnarfjörðurSími520-7500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑