Opið hús 6. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 31Um eignina
Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð með sérinngangi, glæsilegri svalalokun og fallegu útsýni. Íbúðin er björt og notaleg og býður upp á þrjú svefnherbergi, rúmgóða stofu með útgengi á stórar svalir, opið eldhús og góða geymslu- og þvottaaðstöðu. Glæsileg svalalokun skapar notalegt útisvæði sem hægt er að nýta allt árið um kring.
Forstofa er með flísalögðu gólfi og góðum skáp.
Þvottahús og geymsla eru innan íbúðar. Þvottahúsið er flísalagt og þar er góð innrétting ásamt vaski. Úr þvottahúsinu er gengið inn í sérgeymslu sem einnig er flísalögð og með glugga, sem gefur rýminu góða birtu.
Eldhús og stofa mynda bjarta og opna heild. Eldhúsið er með parketi á gólfi og fallegri innréttingu sem er að mestu úr eik, en efri hluti innréttingarinnar er hvítur. Stofan er rúmgóð og með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á stórar svalir með glæsilegri svalalokun. Úr stofu og af svölunum er fallegt útsýni.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfum. Tvö herbergjanna eru með góðum skápum og hjónaherbergið er einnig með rúmgóðum skáp.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og er með fallegri hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og baðkari.
Helstu kostir eignarinnar eru sérinngangur, þrjú svefnherbergi, stórar svalir með glæsilegri svalalokun, fallegt útsýni, góð þvotta- og geymsluaðstaða og vel skipulögð og fjölskylduvæn íbúð.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Austurkór 2
203 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð109,4 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
95.900.000 kr.877 þ./m²
Byggingarár2015InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2329158Fasteignamat79.250.000 kr.Brunabótamat62.250.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 31 myndir
Upp ↑