fasteignasölur.is
Liljugata 3
Opið hús 7. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 29

Um eignina

Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali & LIND Fasteignasala, kynna til sölu:
Björt og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð með suður verönd og sérinngangi á jarðhæð í nýlegu fimm íbúðarhúsi við Liljugötu 3, Mosfellsbæ. 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-2791 eða adda@fastlind.is

Skráð stærð eignar skv. FMR er 110,3 fm og skiptist í íbúð 102,8 fm og geymslu 7,5 fm.
Fasteignamat næsta árs skv. FMR er 80.000.000 kr.

Eignin skiptist í:

Forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og geymslu.

Nánari lýsing eignar:
Forstofa: með fataskáp frá Arens og fatahengi. Gólfið er flísalagt. 
Eldhús: með dökkri innréttingu og eyju frá Arens, á milli efri og neðri skápa er gluggi sem hleypir birtu inn í rýmið. Eldhúsið er búið spanhelluborði, viftu og bakaraofni í vinnuhæð. Pláss er fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. 
Stofa & borðstofa: eru í opnu rými með eldhúsi. Rýmið er bjart með harðparketi á gólfi. 
-Útgengt er úr stofu út á suður verönd.
Hjónaherbergi: rúmgott, með dökkum fataskápum frá Arens og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi I: rúmgott, með dökkum fataskápum frá Arens og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi II: rúmgott, með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: flísalagt gólf og veggir að hluta. Dökk innrétting frá Arens með góðu skúffu og skápa plássi. Flísalögð "walk-in" sturta með gler þili, handklæðaofni og upphengt salerni.
-Í innréttingu á baðherbergi er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. 

Geymsla: er 7,5 fm, staðsett í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla er staðsett í sameign.
Hleðslustöð fyrir rafbíl er á sameiginlegu bílastæði fyrir utan húsið.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-2791 eða adda@fastlind.is


-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Liljugata 3

270 Mosfellsbær
TegundFjölbýlishúsStærð110,3 m²Herbergi3Svefnherb.3Baðherb.1
86.900.000 kr.788 þ./m²
Byggingarár2021InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2511460Fasteignamat77.950.000 kr.Brunabótamat63.550.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑