Um eignina
***** EIGNING ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING *****
Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-6760, birt stærð 101.5 fm.
Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, þvottahús geymslu/herbergi og anddyri.
BÓKIÐ EINKASÝNINGU:
Jens Magnús Jakobsson Lögg.fasteignasali., í síma 8931984, tölvupóstur magnus@eignaland.is
Böðvar Reynisson löggiltur fasteignasali, í síma 766-8484, tölvupóstur bodvar@eignaland.is
Nánari lýsing:
Anddyri með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi I er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi II er með parketi á gólfi og fataskáp.
Geymsla/herbergi með glugga, getur nýst sem svefnherbergi, parket á gólfi.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og einum vegg, göngusturtu, handklæðaofni, upphengdu salerni og dökkri innréttingu með handlaug og speglaskáp yfir innréttingu.
Samliggjandi stofa/borðstofa/eldhús
Eldhúsið er með ítalskri gæða innréttingingu frá Cobo og svörtum quarts borðplötu, helluborði, innfelldum ofni, innfelldri uppþvottavél og ískáp.
Stofan/borðstofan er rúmgóð og björt með parketi á gólfi og útgengt á físalagðar svalir.
Þvottahús/geymsla með dökkri innréttingarhlið til að stúka af þvottavél og þurrkara með niðurfalli í gólfi. Flísalagt gólf.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Austurhólar 2
Staðsetning
Allar 39 myndir
Upp ↑





































