Um eignina
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 76,7 fm. og þar af er geymsla 4,6 fm.
Eignin skiptist í anddyri/hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, ásamt alrými með eldhúsi, borðstofu, stofu og útgengi á rúmgóðar svalir ásamt sér geymslu í sameign.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri/hol með fatahengi og parket á gólfi.
Eldhús er opið við stofu sem mynda alrými eignarinnar með parketi á gólfi. Góð innrétting með innbyggðri uppþvottavél, helluborð, gufugleypir og bakarofn í vinnuhæð.
Stofa og borðstofa er rúmgóð og björt með fallegum gluggum. Úr stofu er útgengi út á rúmgóðar svalir sem snúa í suð-vestur.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi með innangengum sturtuklefa, innrétting handklæðaofn, upphengt salerni og flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla íbúðar er í sameign í kjallara hússins.
Sameiginlegt þvottahús er í sameign. Eingöngu 3 íbúðir í húsinu eru að nota þessa aðstöðu.
Hjóla- og vagnageymsla.
Eignin hefur fengið gott viðhald síðustu ár.
Innanhúss:
- 2019 Ný hurð í íbúð.
- 2020 Gólfefni endurnýjuð, baðherbergi endurnýjað, nýjar hurðar settar í öll herbergi og ofn í stofu endurnýjaður.
Utanhúss:
- 2015 Skólplagnir blokkarinnar voru fóðraðar.
- 2018 Skipt um glugga á norðurhlið hússins.
- 2022 Húsið var múrviðgert og málað að utanverðu, þak og þakrennur hússins voru endurnýjuð, ný skilrúm og handrið sett á milli íbúða á svölum, allt gler í gluggum á suðurhlið endurnýjað, sameignarhurðar endurnýjaðar við hjólageymslu og bakútgang.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, miðsvæðis í borginni á grónum stað þar sem stutt er í leikskóla, skóla, fallegar gönguleiðir í Fossvogsdalnum, verslanir og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Gautland 15
Staðsetning
Allar 28 myndir
Upp ↑


























