fasteignasölur.is
Langholtsvegur 54
Opið hús 7. okt. kl. 16:30–17:00
1 af 34

Um eignina

** Opið hús miðvikudaginn 7. október frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali -  svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja neðri sérhæð í tvíbýlishúsi við Langholtsveg 54, 104 Reykjavík. Eignin er skráð 92,6 m2, en þarf af íbúð 78,4 og geymsla 14,2 m2. Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, hol, eldhús, stofu, baðherbergi, tveimur geymslum innan íbúðar og útigeymslu. Sameiginlegt þvottahús sem er aðgengilegt innan íbúðar. Sameiginleg lóð með steyptri verönd og heitum potti. Steypt bílaplan með snjóbræðslu er fyrir framan íbúðina. Íbúðin er staðsett á eftirsóttum stað í rólegu og grónu hverfi þar sem stutt er í helstu þjónustu.


Skv. upplýsinum frá selajnda hefur húsið fengið talsvert viðhald. Á árunum 2012-2013 var sett dren og skolplagnir endurnýjaðar, steypt plan með hitalögn og ný rafmagnstafla. Útidyrahurð endurnýjaðar, skipt um alla glugga, múrviðgerðir á öllum útitröppum og steyptu handriði. Baðherbergi tekið í gegn.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með parketi á gólfi og innréttingu. Í innréttingu er eldavél og vaskur. Inn af eldhúsi er geymsla nr. 1
Hol er með parketi á gólfi og geymsluskáp. Holið tengir saman öll rými hússins. Þar á meðal sameiginlega þvottahúsið og geymslu nr. 2 sem er góð geymsla með opnarlegum glugga. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt salerni, sturta, handklæðaofn, lítil innrétting með handlaug og gólfhiti.
Stofa er með parketi á gólfi.
Sameiginlegt þvottahús er aðgengilegt innan íbúðar.
Útigeymsla er með glugga, við bílskúr. Er skráð 14,2 m2. Geymslan er óeinangruð.

Verð kr. 64.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Langholtsvegur 54

104 Reykjavík · Vogar
TegundFjölbýlishúsStærð92,6 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
64.900.000 kr.701 þ./m²
Byggingarár1946InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2020155Fasteignamat62.900.000 kr.Brunabótamat45.480.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑