Um eignina
Grundargargötu 54, fallegt og vel skipulagt einbýlishús á góðum stað í Grundarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og fallega náttúru. Húsið býður upp á björt og rúmgóð sameiginleg rými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda opið og notalegt alrými sem hentar einstaklega vel til daglegs lífs og samveru.
Í húsinu eru fjögu rúmgóð svefnherbergi með fataskápum, gott baðherbergi með baðkari og þvottahús með útgengi út í garð. Varmadæla er í alrými stuðlar að hagkvæmri og þægilegri upphitun og ofnar í svefnherbergjum.
Eigninni fylgir bílskúr með rafmagni og stór og gróin lóð með pöllum sem býður upp á ýmsa möguleika fyrir fjölskylduna.
Birt stærð samkv. HMS 185,1 m², íbúðarrými 141,8 m² og bílskúr 43,3 m².
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT eða nánari upplýsingar og skoðunartíma veitir Ingibjörg Agnes í síma 897-6717 eða inga@aldirfasteignir.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalagt gólf með fatahengi.
Hol: Parketlagt.
Eldhús: stofa og borðstofa: Bjart og opið alrými með harðparketi. Eldhúsið er með spanhelluborði, stór eyja og gott vinnurými.
Svefnherbergi: Parketlögð og með fataskápum í öllum herbergjum.
Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi og fataskápum upp í loft.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og flísar að hluta á veggjum. Baðkar með sturtuhaus.
Þvottahús: Flísalagt með útgengi út í garð, útiþvottasnúrur og geymsluloft.
Bílskúr: Rafmagn er til staðar en ekki hiti.
Kynding: Rafmagn. Varmadæla er í eldhúsi, stofu og borðstofu en ofnar í svefnherbergjum.
Annað: Skólplagnir utanhúss hafa verið endurnýjaðar að hluta.
Hér er um að ræða notarlegt heimili miðsvæðis í Grundarfirði sem hentar jafnt fjölskyldum sem þeim sem vilja njóta lífsins í fallegu umhverfi við rætur Kirkjufells.
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.
Grundargata 54
Staðsetning
Allar 34 myndir
Upp ↑
































