Um eignina
**** EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMING ****
Eignin Bergvík 17 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-5357, mhl. 0103, birt stærð 100.4 fm ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin skiptist í forstofu, stofu/eldhús í opnu rými, þrjú rúmgóð svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi
BÓKAÐU EINKASÝNINGU:
Böðvar Reynisson löggiltur fasteignasali, sími 766-8484 eða bodvar@eignaland.is
Jens Magnús Jakobsson Lögg.fasteignasali, sími 8931984 eða magnus@eignaland.is
NÁNARI LÝSING:
Forstofan er með flísum á gólfi og forstofuskáp.
Samliggjandi stofa/borðstofa/eldhús
Eldhúsið er parketlögð með fallegri IKEA innréttingu með lýsingu undir efri skápum og ljósri borðplötu. Innbyggður bakaraofn í vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti. Eyja með spanhelluborði og (filter)háfi fyrir ofan helluborð. Borðplata stendur út af innréttingu stofu megin svo hægt sé að sitja við eyjuna.
Stofan/borðstofan er parketlögð, rúmgóð og björt og gengið er frá stofunni út í suðvestur garð.
Svefnherbergi I er rúmgott með góðum fataskápum.
Svefnherbergi II með góðum fataskáp.
Svefnherbergi III með góðum fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja, falleg innrétting með handlaug og speglaskáp fyrir ofan innréttingu. Upphengt salerni, handklæðaofn, góður skápur fyrir aftan hurð og sturtu með glerhlið.
Þvottahúsið er með fallegri innréttingu og rúmgóðu skápaplássi, vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Einstaklega fallegt og vel skipulagt hús sem vert er að skoða
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Bergvík 17
Staðsetning
Allar 39 myndir
Upp ↑





































